Vilja skapa aðstæður til leitar að Lúðvík
Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt fyrirhugað verklag við sprunguviðgerð í Stamphólsgjá. Ráðið leggur áherslu á að viðgerðinni verði hagað þannig að hægt verði að hefja á ný leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar þegar aðstæður leyfa.
Fyrirhugað verklag var rætt á fundi með fjölskyldu Lúðvíks 10. nóvember. Það var einnig rætt við lögreglustjóra og forsætisráðuneytið. Samkvæmt fundargerð bæjarráðs náðist samkomulag um hvernig staðið yrði að framkvæmdinni og hvernig öryggi á vettvangi yrði tryggt.
Bæjarráð vill að fjölskylda Lúðvíks fái reglulega upplýsingar um framvindu verksins og að fulltrúar hennar geti komið ábendingum á framfæri þegar tilefni er til. Erindi fjölskyldunnar og drög að svarbréfi bæjarstjóra voru meðal gagna sem lögð voru fyrir ráðið.
Á sama fundi samþykkti bæjarráð einnig fyrirhugað verklag við niðurrif fjögurra húsa við Vesturhóp.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗