Starfsmennirnir í Hagaskóla þurfi svigrúm

Hjördís Rut Sigurjónsdóttir vill að jákvætt skólastarf fái meiri athygli.

Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri samskipta hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, telur fjölmiðlaumfjöllun um mál tveggja starfsmanna Hagaskóla hafa gengið of langt.

Hún segir mikilvægt að hlutaðeigendur fái svigrúm til að vinna úr málinu og vill að jákvætt skólastarf fái meiri athygli.

Hjördís bendir sérstaklega á árlega góðgerðardaginn Gott mál, sem fram fór í Hagaskóla í gær. Þar söfnuðu nemendur fé til styrktar Krabbameinsfélaginu og börnum og ungmennum í Suður-Súdan, meðal annars með veitingasölu og fjölbreyttri afþreyingu.

Hjördís fór sjálf í skólann til að fylgjast með góðgerðardeginum og að hennar sögn var þar létt yfir fólki. Ekki liggur enn fyrir hversu mikið fé safnaðist, en að sögn Hjördísar verður það upplýst við formlega afhendingu styrkjanna.

„Það væri bara ánægjulegt að skólamálin sem slík fengju meiri umfjöllun,“ segir Hjördís.

Vill að málið fái sinn gang

Hjördís minnir jafnframt á að einstaklingar eigi í hlut og bendir á að starfsmannamál séu almennt ekki til umfjöllunar fyrir opnum tjöldum dögum saman.

Málið sé til meðferðar hjá skólastjórnendum og mannauðsþjónustu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og mikilvægt að það fái sinn gang.

Aðspurð hvort annar starfsmannanna væri kominn í leyfi vildi Hjördís ekki tjá sig um það. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab