Norðmenn mæta Englandi aftur – stórleikir fram undan

Erling Haaland knúsar Jude Bellingham í leik Noregs og Englands á HM. AFP/Roberto Schmidt

Stórleikir eru fram undan í átta liða úrslitum Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í dag.

Heims- og Evrópumeistarar Spánar mæta Frökkum í stærsta leik átta liða úrslitanna. Norðmenn mæta þá Englendingum, Hollendingar mæta Portúgölum og Belgar mæta Þjóðverjum.

Noregur og England mættust í átta liða úrslitum HM í sumar og Spánn og Frakkland mættust í undanúrslitum. 

Sigurvegari úr leik Hollendinga og Portúgala mætir sigurvegaranum úr leik Spánverja og Frakka í undanúrslitum.

Sigurvegarinn úr leik Belga og Þjóðverja mætir síðan sigurvegaranum úr leik Norðmanna og Englendinga.

Leikirnir fara fram í mars og svo júní.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab