Markar tímamót fyrir ferðaþjónustuna

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, Grímur Sæmundsen, stjórnarformaður Bláa lónsins, og Björg Jónsdóttir, eiginkona Gríms, við bjölluhringinguna í morgun. mbl.is/Eyþór

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, segir skráningu félagsins í Kauphöll Íslands marka tímamót fyrir fyrirtækið, íslenska ferðaþjónustu og innlendan hlutabréfamarkað.

„Núna er kominn fulltrúi stærstu útflutningsgreinar landsins í Kauphöllina,“ segir hún í samtali við mbl.is.

Hlutabréf Bláa lónsins hf. voru tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallar Íslands í dag undir auðkenninu BLUE. Í almenna hlutafjárútboðinu, sem lauk 13. nóvember, seldi félagið 150 milljónir nýrra hluta á 95 krónur á hlut. Söluandvirðið nam 14,25 milljörðum króna. 

Forréttindi að fá að skrá félagið

Sigríður Margrét tók við starfi forstjóra í mars. Hún segir það mikil forréttindi að vera í hlutverkinu þegar Bláa lónið er skráð í Kauphöll, 34 árum eftir að fyrirtækið var stofnað.

Hún segist spennt fyrir framhaldinu og þeim uppbyggingarverkefnum sem starfsfólkið geti nú einbeitt sér að. 

Þá segir hún Bláa lónið einstakt á heimsvísu og að félagið hafi tækifæri til að kynna Ísland á alþjóðavettvangi sem áfangastað fyrir heilsu og vellíðan.

Sýnileikinn eykst með skráningunni

Spurð hvort skráningin geti orðið til þess að fleiri vilji heimsækja Bláa lónið segir Sigríður Margrét að sýnileiki félagsins aukist samhliða skráningunni.

Meiri áhugi kæmi henni ekki á óvart en tíminn verði að leiða það í ljós.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab