Selenskí: Ein stærsta árás stríðsins
Erlent | AFP | 20.11.2026 | 11:11 | Uppfært 11:35
Rússar skutu meira en 110 flugskeytum á Úkraínu í nótt í einni af „stærstu árásum“ alls stríðsins, sagði Volodímír Selenskí forseti Úkraínu, í dag eftir árásir sem kostuðu að minnsta kosti átta manns lífið.
„Rússland reynir að bæta upp hernaðarlegan og diplómatískan vanmátt sinn með hryðjuverkum af þessu tagi,“ sagði Selenskí og bætti við að tilraun Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta til að „teikna upp heimskortið að nýju“ ásamt Xi Jinping, forseta Kína, og Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á leiðtogafundi í Kína í gær hefði verið „misheppnuð“.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗