1984 stöðvar þjónustu eftir tölvuárás

Þjónusta 1984 liggur niðri eftir tölvuárás.

Þjónusta 1984 liggur niðri eftir tölvuárás. mbl.is/Skjáskot

Íslenska vefhýsingarfyrirtækið 1984 ehf. hefur stöðvað alla þjónustu sína tímabundið í kjölfar umfangsmikillar tölvuárásar. Fyrirtækið hyggst koma tölvupósti og nafnaþjónustu aftur í gang fljótlega en óvíst er hvenær önnur þjónusta verður endurheimt.

Fyrstu niðurstöður rannsóknar benda að sögn fyrirtækisins til þess að árásin hafi verið vel skipulögð og tæknilega háþróuð. Enn er verið að kanna umfang hennar og fyrirtækið segir mögulegt að fleiri kerfi hafi orðið fyrir áhrifum en þegar hefur verið staðfest.

Lokuðu kerfum sínum 

Fyrirtækið segist hafa lokað kerfum sínum til að takmarka áhrif árásarinnar og rannsaka atvikið. Tölvupóstur og nafnaþjónusta verða undir sérstöku eftirliti þegar þau komast aftur í gang. Önnur þjónusta verður opnuð á ný þegar fyrirtækið hefur lokið öryggisráðstöfunum og sannreynt öryggi kerfanna.

1984 hefur tilkynnt árásina til CERT-IS, netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda, sem aðstoðar við rannsóknina og viðbrögð að sögn fyrirtækisins. 

Hýsir vefsíður og tölvupóst

1984 er íslenskt fyrirtæki sem hýsir vefsíður og tölvupóst fyrir viðskiptavini og býður upp á skráningu léna. Fyrirtækið rekur einnig nafnaþjónustu, eða DNS, sem vísar lénum á rétta netþjóna. Sú þjónusta hjálpar vöfrum að finna vefsíður og póstkerfum að koma tölvupósti til skila.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab