Jólakakan sem Tom Cruise sendir stjörnunum
Kókoskaka með hvítu súkkulaði, rjómaostakremi og kókosflögum frá Doan’s Bakery hefur öðlast heimsfrægð sem jólagjöf Toms Cruise. Hún er seld á Goldbelly á um 17.490 krónur en ekki er boðið upp á beina sendingu til Íslands. Samsett mynd/Henry Nicholls/AFP/Goldbelly
Það fylgir því ákveðinn heiður að vera á jólalista Toms Cruise. Gjöfin sem bíður útvalinna vina hans og samstarfsfólks er nefnilega kaka. Kókoskaka með hvítu súkkulaði, rjómaostakremi og kókosflögum sem hefur öðlast eigin frægð í Hollywood. Kakan heitir á ensku: White Chocolate Coconut Bundt Cake.
Kakan kemur frá fjölskyldubakaríinu Doan’s Bakery í Woodland Hills í Los Angeles. Cruise pantar hundruð kaka fyrir jólin og meðal þeirra sem hafa fengið sendingu eru leikararnir Glen Powell og Rosie O’Donnell. Eric Doan, eigandi bakarísins, hefur látið hafa eftir sér í fjölmiðlum að Cruise og frægðin hans hafi gert kókoskökunni hátt undir höfði. Hún væri nú vinsælasta kaka staðarins.
Diane Keaton kemur við sögu
Það var Karen Doan, stofnandi bakarísins og móðir Eric Doan, sem bjó til kökuna fyrst. Samkvæmt umfjöllun fjölmiðla kynntist Cruise kökunni fyrir tilstilli þáverandi eiginkonu sinnar, Katie Holmes, og leikkonunnar Diane Keaton þegar þær unnu saman að kvikmyndinni Mad Money árið 2008. Keaton hafði dálæti á kökunni og það smitaði út frá sér. Síðan hefur framleiðslufyrirtæki Cruise pantað kökur hjá bakaríinu, sérstaklega fyrir jólin.
Kirsten Dunst er einnig meðal þeirra sem hafa fengið kökuna. Árið 2024 staðfesti hún að Cruise sendi henni enn jólagjöfina, áratugum eftir að þau léku saman í Interview with the Vampire.
Þarf ekki að vera á jólalistanum
Það þarf þó ekki að vera á jólalista Cruise til að smakka kökuna. Hún er einnig seld á Goldbelly, þar sem verðið er 139,95 Bandaríkjadalir, eða um 17.490 krónur. Kakan er auglýst með gjaldfrjálsri sendingu, en viðbótargjöld geta farið eftir afhendingarstað og dagsetningu.
Íslenskir sælkerar rekast þó á eina áskorun: Goldbelly býður ekki upp á beina sendingu til Íslands. Þeir sem vilja fá kökuna hingað heim gætu því þurft að láta sér nægja að baka sína eigin útgáfu.
Oprah Winfrey er ein þeirra sem tala fyrir því að allir geti keypt kökuna. Hún á þá við alla í Bandaríkjunum.
Má baka hana heima?
Upprunalega uppskriftin er leyndarmál bakarísins. Heimabakarar hafa þó reynt að endurskapa kökuna, meðal annars Michelle Lopez, höfundur bökunarvefsins Hummingbird High. Eftirfarandi uppskrift er hennar útgáfa, að fyrirmynd kökunnar frægu. Hún þykir mjög lík köku Tom Cruise.
Kókoskaka að fyrirmynd jólagjafar Toms Cruise
Eitt stórt hringform með gati, um 2,8 lítrar.
Kaka
- 383 g hveiti
- ½ tsk. lyftiduft
- ½ tsk. fínt salt
- 227 g sýrður rjómi
- 2 tsk. vanilluþykkni
- 2 tsk. kókosþykkni
- 595 g sykur
- 227 g ósaltað smjör
- 6 stór egg
- 227 g hvítt súkkulaði, fínsaxað
Krem og skraut
- 227 g rjómaostur
- 113 g ósaltað smjör
- ½ tsk. kókosþykkni
- ½ tsk. vanilluþykkni
- 227 g flórsykur
- Salt á hnífsoddi
- 122 g kókosflögur
Aðferð
- Hitið ofninn í 175 °C. Hafið smjör, egg, rjómaost og sýrðan rjóma við stofuhita.
- Blandið hveiti, lyftidufti og salti. Blandið sýrðum rjóma og bragðefnum sérstaklega.
- Þeytið smjör og sykur ljóst. Bætið eggjunum við, einu í senn.
- Hrærið þurrefnum og rjómablöndu saman við til skiptis. Blandið súkkulaðinu saman við.
- Smyrjið formið vandlega með bökunarúða. Setjið deigið í það.
- Bakið í 65–75 mínútur, þar til prjónn kemur út með örfáum mylsnum. Hvolfið eftir tíu mínútur. Kælið.
- Ristið kókosflögurnar örlítið á þurri pönnu. Kælið.
- Þeytið kremhráefnin saman og bætið flórsykrinum smám saman við. Smyrjið kreminu á kalda kökuna og þrýstið kókosflögunum utan á.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/31/1693167.jpg)