Komu Wilson Hansa í örugga höfn
Varðskipið Freyja kveður flutningskipið Wilson Hansa eftir að hafa komið því í örugga höfn á Akureyri. mbl.is/Þorgeir
Tæplega sólarhringstöf varð á komu varðskipsins Freyju til Akureyrar með flutningaskipið Wilson Hansa af því dráttartóg sem búið var að koma í skipið slitnaði á meðan verið var að draga það.
Gæslan greindi frá því á þriðjudag að Freyja hefði verið send til aðstoðar eftir að stýrisbilun kom upp í skipinu um 210 sjómílur austnorðaustur af Langanesi.
Þá var gert ráð fyrir komu til Akureyrar á miðvikudagskvöld, en skipin komu þangað eftir hádegið í gær.
Hér má sjá hafnsögubátana á Akureyri með flutningaskipið á milli sín á Eyjafirði í gær. mbl.is/Þorgeir
Fram kemur á mynda- og fréttavef Þorgeirs Baldurssonar að um klukkan fjögur hafi hafnsögubátar Hafnarsamlags Norðurlands tekið við skipinu og komið því að bryggju við Krossanes um klukkan átta í gærkvöldi.
Þar verður skipið affermt, en um borð eru nærri 4.300 tonn af íblöndunarefni sem losa átti á Grundartanga, en þangað var för skipsins heitið.
Gert er ráð fyrir því að afferming taki nokkra daga, en farmurinn verður fluttur landleiðina á áfangastað.
Að því loknu fer skipið í flotkví hjá Slippnum DNG á Akureyri þar sem hugað verður að skemmdum á stýrisbúnaði þess.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

