18 félög sameinast gegn Man City – Gæti kostað hundruð milljóna punda

Félög ensku úrvalsdeildarinnar hafa samþykkt að greiða lögfræðikostnað stjórnarmanna deildarinnar ef styrktaraðilar Manchester City ákveða að höfða mál gegn þeim.

Atkvæðagreiðslan fór fram á fundi félaganna í Lundúnum á fimmtudag. Alls greiddu 18 félög atkvæði með tillögunni en Manchester City og Nottingham Forest voru einu félögin sem greiddu atkvæði gegn henni.

Málið tengist niðurstöðu óháðrar nefndar sem úrskurðaði í september að City hefði brotið fjármálareglur deildarinnar með því að blása upp tekjur félagsins um rúmlega 830 milljónir punda á níu ára tímabili.

City hefur áfrýjað niðurstöðunni og neitar sök.

Styrktaraðilarnir Etihad og Etisalat hafa báðir hótað lögsókn gegn úrvalsdeildinni vegna niðurstöðunnar.

Samkvæmt nýju reglunum munu félögin 20 sameiginlega bera ábyrgð á mögulegum lögfræðikostnaði, sem gæti numið hundruðum milljóna punda.

Það þýðir að Manchester City gæti sjálft þurft að taka þátt í að greiða kostnað vegna mögulegra málaferla eigin styrktaraðila gegn ensku úrvalsdeildinni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab