Allt logar í Skarðshlíð út af nýju búsetuúrræði fyrir börn í þremur raðhúsum - „Við byggðum og keyptum hér fyrir aleigu okkar“
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 20. nóvember 2026 11:30
Íbúar segja að í raun sé verið að byggja ríkisstofnun í miðju íbúahverfi án umræðu.
Íbúar í Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði hafa áhyggjur af uppbyggingu ríkisins á búsetuúrræði fyrir börn í þremur raðhúsum í hverfinu. Umfangið sé slíkt að í raun sé verið að byggja upp stofnun í miðju íbúahverfi án umræðu. Formaður bæjarráðs segir að bærinn muni skoða málið en að einhvers staðar þurfi þessi heimili að vera.
Uppbygging búsetuúrræðis fyir börn á vegum Barna- og fjölskyldustofu í Glimmerskarði 2 – 6 í Hafnarfirði hefur vakið kurr á meðal íbúa í Skarðshlíðarhverfinu. Í umræðum um málið á samfélagsmiðlum er meðal annars sagt að umfangið sé allt of mikið, þetta samræmist ekki deiluskipulagi og að margt sé á huldu. Bærinn hafi ekki gert athugasemdir en hann hafi rannsóknarskyldu.
Sé í raun ríkisstofnun
„Þetta snýst ekki um börnin. Þetta snýst um umfang og hvernig að málinu er staðið,“ segir ein kona í umræðunum. „Við byggðum og keyptum hér fyrir aleigu okkar, á lóðum í hverfi sem var skipulagt og auglýst sem íbúðarhverfi. Það var forsendan. Nú stefnir í sólarhringsrekstur ríkisstofnunar í þremur raðhúsum.“
Raðhúsin þrjú spanna samanlagt 825 fermetra. Þar verður starfsfólk á vakt allan sólarhringinn, það er 2-4 starfsmenn en ekki liggur fyrir hvort það sé í hverri íbúð eða samanlagt í þeim öllum. Framkvæmdir virðast þegar hafnar í húsunum við að skipta þeim upp.
Benda íbúar einnig á rask af vaktaskiptum á öllum tíma sólarhrings, umferð og ónæði í íbúagötu nálægt bæði grunnskóla og leikskóla. Þá fylgi aðeins þrjú bílastæði húsunum og starfsfólk muni því þurfa að taka gestastæði.
„Ég kæri mig ekki um að fá þetta hingað í hverfið. Ég gæti alveg fallist á 2-3 börn í svona úrræði en heilan kjarna með allt að 18 börnum er fáranlegt inní miðju fjölskylduhverfi,“ segir önnur kona í umræðunum og hvetur til mótmæla.
„Á bara að gera skarðshlíð að féló sérúrræðishverfi? Hvernig mun þetta allt hafa áhrif á fasteignarverð? Held að Hafnarfjarðarbær þarf að fara að borga fólk út!!“ segir annar.
Bærinn gerði ekki athugasemd
Þann 20. Október skilaði Hafnarfjarðarbær umsögn um málið til Barna- og fjölskyldustofu. Þar kemur fram að bærinn hafi í gegnum tíðina skipulagt búsetukjarna innan íbúðasvæða. Voru því ekki gerðar athugsemdir við áætlanir ríkisstofnunarinnar í Glimmerskarði en ítrekað að starfsfólk ætti að sýna íbúum tillitssemi og leggja bílum sínum fjær húsnæðinu.
„Ekki verður annað séð en að fyrirhugað búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættar stuðningsþarfir falli undir sama flokk,“ segir í umsögninni.
Heimilin verði að vera einhvers staðar
Í samtali við DV segist Orri Björnsson, formaður bæjarráðs, hafa fengið tölvupósta frá íbúa um málið í morgun. Málið verði skoðað hjá bænum og farið yfir það.
Hann tekur hins vegar ekki undir það að verið sé að byggja stofnun í íbúahverfi.
„Ég held að það sé nú ekki rétt. Þetta er á endanum heimili og við þurfum einhvers staðar að hafa þessi heimili. Þetta eru ekki stofnanir,“ segir hann. „Það er ríkið sem er að setja þetta heimili þarna og við kjörnir fulltrúar erum ekki inni í þessu í smáatriðum. Ég mun kynna mér þetta í dag, ég var að fá fréttir af þessu og pósta frá íbúum.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗