Gunna Dís segir tvennt hafa farið úrskeiðis í Hagaskólamálinu - „Kemur í bakið á þeim“

Mál tveggja starfsmanna Hagaskóla hefur verið umtalað síðustu sólarhringa. Starfsmennirnir létu vel hvor að öðrum á skólatíma á þriðjudaginn er þeir töldu sig vera í einrúmi. Ekki vildi þó betur til en svo að nemendur gátu séð hvað fór fram í gegnum sandblásið gler.

Eins og gerist gjarnan á litla Íslandi fór að spyrjast út hvað hafði gerst. Fjölmiðlar leituðu svara hjá skólanum og á miðvikudagskvöldið fengu forráðamenn tölvupóst frá skólastjóra þar sem sagði: „Tveir starfsmenn skólans, sem töldu sig vera í einrúmi, sáust kyssast í gegnum sandblásið gler í gær.“

Útskýrði skólastjóri að málið væri komið til mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs og að starfsfólk skólans yrði sýnilegt á göngum svo nemendur gætu leitað til þeirra með spurningar.

Fjölmiðlar upplýstu um tölvupóstinn og þá furðuðu margir sig á viðbrögðunum við saklausum kossum.

Það kom síðar í ljós að um meira en kossa var að ræða. Myndefni frá atvikinu er í dreifingu þar sem sjá má starfsmenn í innilegum faðmlögum bak við sandblásið gler og ljóst er að þeir sem urðu vitni að atlotunum töldu að um samfarir hefði verið að ræða.

Hagaskólamálið var til umræðu í Morgunútvarpinu á Rás 2. Þar fengu þau Gunna Dís og Atli Fannar til sín góða gesti, leikkonuna Söndru Barilli og tónlistarmanninn Snorra Helgason. Þegar kom að því að ræða fréttir vikunnar var Hagaskólamálið efst í huga. Sandra var þó ekki viss hvort það væri viðeigandi. „Megum við ræða það?“

Þáttastjórnendur héldu það nú. Þetta hafi verið í fréttum og ekki bara það heldur var þetta stærsta fréttin á flestum miðlum í gær.

Snorri sagði að um leiðindamál væri að ræða. Sandra benti á að það skipti máli hvað vakti fyrir starfsmönnunum.

„Ég hugsaði samt, ef þau væru að banga í skólanum til þess að banga í skólanum, þá finnst mér þetta ekki kúl. En ef þau voru að banga, af því þau voru svo ótrúlega ástfangin og réðu ekki við sig, þá finnst mér þetta eiginlega allt í lagi. Leyfi þessu að slæda. En ef þetta er einhver svona tékklisti, einhver mile high-klúbbur, eitthvað svona, við vinnum bæði í skólanum og það er best að tékka það af listanum að hafa bangað þar, þá styð ég þetta ekki.“

Gunna Dís benti á tvennt sem hún segir hafa komið í bakið á starfsfólkinu.

Í fyrsta lagi sandblásna glerið. Það sást í gegnum það. Gunna Dís telur að þetta sé eitthvað sem fólk ætti að vita. Snorri og Sandra beindu þó spjótum sínum að stjórnendum skólans og borgaryfirvöldum.

„Það þarf að fara yfir verklagið í útboðinu. Hver sandblés þessum sandi í þetta gler?“ spurði Snorri alvarlegur og Sandra benti á að það geti haft áhrif á gæði þegar lægsta boðinu er tekið: „Útboð hjá Reykjavíkurborg eru skyldug til þess að taka ódýrasta tilboðinu þannig að það er verst.“

Benti Gunna Dís þá á hitt atriðið sem kom í bakið á Hagaskólaparinu:

„Við erum búin að læra að það sést í gegnum sandblásið gler en það er annað sem kemur í bakið á þeim. Það er að þarna er augljóslega ekki verið að virða símabannið.“

Þarna hafi ungmenni verið með síma. Þáttastjórnendur og gestir veltu þá fyrir sér hvort símabannið hafi átt við einmitt þarna. Blaðamaður getur svarað því. Samkvæmt skólareglum Hagaskóla er notkun snjallsíma í skólanum óheimil. Ef nemendur taka síma með sér í skólann eiga þeir að geyma hann í töskunni yfir daginn. Eins hefur Inga Sæland sett reglugerð um símafrí á skólatíma. Sumir gætu velt fyrir sér hvort krakkarnir hafi þarna verið að nýta frítíma til símanotkunar, en slíkt rúmast hvorki innan reglugerðarinnar né skólareglna og eins hefur komið fram, í frétt Mannlífs um málið, að nemendurnir sem urðu vitni að athæfinu voru í enskutíma.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab