Stöðva þjónustu tímabundið eftir alvarlega tölvuárás á innviði 1984 ehf.

Hýsingarfyrirtækið 1984 ehf. hefur orðið fyrir umfangsmikilli og alvarlegri tölvuárás. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu fyrirtækisins og netöryggissveitarinnar CERT-IS. Sú erfiða ákvörðun var tekin í framhaldinu að stöðva tímabundið alla þjónustu fyrirtækisins. Reiknað er með að DNS og póstþjónusta komist fljótt aftur í gagnið og verður þá starfrækt undir sérstöku eftirliti. Aðrar þjónustur verða ekki teknar aftur í notkun fyrr en að loknum öryggisráðstöfunum og sannprófunum. 

Tilkynningin er eftirfarandi: 

„1984 ehf. hefur orðið fyrir umfangsmikilli og alvarlegri tölvuárás á upplýsingatækniinnviði fyrirtækisins. Fyrstu niðurstöður rannsóknar benda til þess að um sé að ræða vel skipulagða og tæknilega háþróaða árás. Umfang árásarinnar er enn til rannsóknar og ekki er unnt að útiloka að fleiri kerfi hafi orðið fyrir áhrifum en þegar hefur verið staðfest.

Í ljósi alvarleika stöðunnar hefur 1984 ehf. tekið þá erfiðu ákvörðun að stöðva tímabundið alla þjónustu fyrirtækisins. DNS og póstþjónustur koma þó fljótlega upp aftur en ákveðið var að loka alveg fyrir kerfi fyrirtækisins til að byrja með og koma svo pósti og dns í lag hratt og örugglega.

Ákvörðunin er tekin í öryggisskyni, til að takmarka möguleg frekari áhrif árásarinnar, tryggja að unnt sé að rannsaka atvikið með fullnægjandi hætti og koma í veg fyrir að þjónustur verði teknar aftur í notkun áður en öryggi þeirra hefur verið sannreynt.

Tölvupóstþjónusta og DNS munu áfram vera starfrækt undir sérstöku eftirliti. Aðrar þjónustur verða ekki teknar aftur í notkun fyrr en nauðsynlegum öryggisráðstöfunum og sannprófunum hefur verið lokið.

1984 ehf. hefur tilkynnt atvikið til CERT-IS sem aðstoðar við rannsókn, afmörkun atviksins og með viðeigandi viðbrögðum.

1984 ehf. gerir sér fulla grein fyrir þeim alvarlegu óþægindum og rekstraráhrifum sem tímabundin stöðvun þjónustu hefur fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Ákvörðunin er engu að síður talin nauðsynleg í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga og þeirrar ábyrgðar sem fyrirtækið ber á öryggi innviða sinna og gagna viðskiptavina.

Ekki er að svo stöddu hægt að segja til um hvenær allar þjónustur verða komnar í eðlilegt horf. Forgangsmál er að tryggja öryggi kerfanna áður en starfsemi verður hafin að nýju.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab