Steven Lennon í nýtt starf
Skotinn Steven Lennon hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Fylkis í fótbolta.
Lennon skrifar undir tveggja ára samning við Fylki og mun aðstoða Aron Baldvin Þórðarson, sem var ráðinn þjálfari liðsins á dögunum.
„Auk þess mun Lennon sinna afreksþjálfun hjá félaginu og gegna hlutverki svokallaðs transition-þjálfara sem ætlað er að undirbúa og auðvelda leikmönnum 2. flokks að taka skrefið upp í meistaraflokk. Markmiðið er að þetta skili fleiri leikmönnum yngri flokka upp í meistaraflokk og að þeir séu betur undirbúnir þegar þangað er komið,“ stendur í tilkynningu Fylkis.
Lennon, sem er 38 ára gamall, er algjör goðsögn hjá FH en hann er eini erlendi leikmaðurinn sem hefur skorað 100 mörk í efstu deild hér á landi.
Hann kemur upprunalega úr knattspyrnuakademíu Rangers í Skotlandi en lék einnig með liðum á Englandi, Írlandi og í Noregi áður en hann fluttist alfarið til Íslands þar sem hann hefur komið sér vel fyrir. Lennon lék einnig með Fram og Þrótti R. hérlendis.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗