„Tilfinningin er stórkostleg“
Grímur segir skráninguna auka sýnileika félagsins og skapa nýja möguleika í fjármögnun. Henni fylgi jafnframt auknar kröfur um gagnsæi og aga sem félagið ætli að standa undir. mbl.is/Eyþór
Bjölluhringingin við skráningu Bláa lónsins í Kauphöll Íslands í dag var tilfinningaþrungnari en Grímur Sæmundsen, stjórnarformaður félagsins, átti von á.
Þegar hann stóð í Lava-veitingasalnum og horfði til orkuversins rifjaði hann upp hvernig fyrirtækið varð til í kringum lón sem myndaðist úr affallsvatni frá verinu.
„Tilfinningin er bara stórkostleg,“ segir Grímur í samtali við mbl.is. Honum þyki ótrúlegt að það sem hann kallar „verðlaust affall“ hafi orðið að því fyrirtæki sem Bláa lónið er í dag. Hann kveðst stoltur af því sem áunnist hefur og bjartsýnn á framhaldið.
Nýtt vaxtarskeið
Hlutabréf Bláa lónsins hf. voru tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallar Íslands í dag undir auðkenninu BLUE.
Grímur segir að með nýju hlutafé sé félagið í stakk búið til að hefja nýtt vaxtarskeið. Markmiðið sé að gera Ísland að einstökum áfangastað fyrir heilsu og vellíðan á næstu fimm til tíu árum.
Í almenna hlutafjárútboðinu, sem lauk 13. nóvember, seldi Bláa lónið 150 milljónir nýrra hluta á 95 krónur á hlut. Söluandvirðið nam 14,25 milljörðum króna og bárust áskriftir fyrir um 15,3 milljarða. Að sögn Gríms bættust um fjögur þúsund nýir hluthafar í hópinn.
Á móti straumnum
Grímur segir að markmið félagsins hafi ráðið tímasetningu skráningarinnar þrátt fyrir að aðstæður á hlutabréfamarkaði hafi lengi verið erfiðar. Hann lýsir markaðnum sem „hálfgerðu frosti“.
„Við tókum samt þá ákvörðun, eins og við höfum oft gert áður í sögu félagsins, að synda á móti straumnum og fara alla leið,“ segir Grímur.
Hann segir útboðsgengið hafa verið ákveðið eftir ítarlega skoðun. Viðskipti með hluti í félaginu fyrir tugi milljarða króna hafi áður farið fram á genginu 95 krónur á hlut meðan félagið var óskráð. Útreikningar félagsins hafi einnig stutt verðlagninguna.
Auknar kröfur um gagnsæi
Grímur segir skráninguna auka sýnileika félagsins og skapa nýja möguleika í fjármögnun. Henni fylgi jafnframt auknar kröfur um gagnsæi og aga sem félagið ætli að standa undir.
Hann segir félagið ætla að þakka nýjum hluthöfum traustið með því að skila árangri og mæta væntingum þeirra. Gengi hlutabréfanna frá degi til dags segi að hans mati lítið um ávöxtunarmöguleika til lengri tíma.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗