Miley Cyrus á leið upp að altarinu eftir nokkra daga

Tónlistarparið Miley Cyrus and Maxx Morando ætla að ganga í hjónaband á næstu dögum. Ljósmynd/AFP

Tónlistarkonan Miley Cyrus er sögð ætla að ganga að eiga unnusta sinn, tónlistarmanninn Maxx Marondo um helgina. Þetta verður annað hjónaband Cyrus sem verður 34 ára í lok nóvember. 

Brúðkaupið fer fram í Suður-Karólínuríki í Bandaríkjunum að því fram kemur á vef TMZ. Það eru heimildarmenn sem þekkja vel til parsins sem láku upplýsingunum í miðilinn en greina ekki frekar frá hvernig brúðkaupið verður. 

Kynntust á blindu stefnumóti

Ár er frá því að parið trúlofaði sig. Cyrus og Morando eiga tónlistina sameiginlega en Marondo er þekktur trommari. Þau kynntust á blindu stefnumóti og mættu í fyrsta sinn saman á opinberan viðburð árið 2021. 

Cyrus var áður gift ástralska leikaranum Liam Hemsworth frá 2018 til 2019.

Miley Cyrus og Maxx Morando.

Miley Cyrus og Maxx Morando. AFP

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab