Faðirinn sleginn: Sonurinn segist hafa varist handrukkun

Maðurinn sem lést var 34 ára gamall.

Á upptöku úr öryggismyndavél sést maðurinn sem síðar lést í átökum í Breiðholti slá föður mannsins sem nú situr í gæsluvarðhaldi í höfuðið með grjóti. 

Maðurinn hafi í framhaldinu fylgt eftir og haldið árás sinni áfram og meðal annars tekið föðurinn hálstaki. Í framhaldinu er sonurinn sagður hafa veist að árásarmönnum með hníf með þeim afleiðingum að annar þeirra lést. Vísir segir fyrst frá.

Átökin urðu skammt frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti aðfaranótt 1. nóvember. Hringt var á sjúkrabíl eftir stunguárásina. Mennirnir voru hinum megin við götuna, gegnt FB, þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang. Báðir voru þá á lífi og voru fluttir á sjúkrahús. Annar þeirra lést síðar af sárum sínum en hinn særðist alvarlega og var þungt haldinn um tíma að sögn lögreglu.

Hringdu sjálfir á sjúkrabíl 

Þriðji maðurinn, sem sagður er hafa verið í félagi við mennina sem urðu fyrir stunguárásunum, var einnig handtekinn en honum var sleppt skömmu síðar. Óvíst er hvort hann hafi hringt eftir aðstoð. E. Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn sagði í samtali við mbl.is að mennirnir hefðu sjálfir hringt á sjúkrabíl og að vegfarandi hefði hugsanlega einnig gert það.

Segist hafa verið að verjast handrukkun

Feðgarnir og maðurinn sem lést voru á sportbar í Hólahverfi í aðdraganda átakanna en átök hófust utandyra.

Málsvörn sonarins byggist á neyðarvörn. Samkvæmt heimildum mbl.is heldur hann því fram að hann hafi m.a. verið að verjast handrukkun. Maðurinn sem lést hafi ásamt öðrum manni ætlað að kúga af honum fé.

Komi málið til kasta dómstóla og verði talið sannað að sonurinn hafi verið að verjast handrukkun yrði það, eftir því sem mbl.is kemst næst, í fyrsta sinn sem reyndi á viðlíka atvik fyrir íslenskum dómstólum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab