Alvarlegt hve lítið hefur þokast í eignarhaldsmáli Sinfó
Samkvæmt tónlistarlögum er hljómsveitin eign íslensku þjóðarinnar og sjálfstæð stofnun með sérstakan fjárhag. Lögin kveða á um að ríkissjóður greiði 82% af rekstrarkostnaði og borgarsjóður Reykjavíkur 18%. mbl.is/Anton Brink
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis telur alvarlegt hve lítið hefur verið unnið að því að skýra eignarhald og rekstrarform Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Nefndin hvatti ráðuneytið sem fer með menningarmál til að flýta þeirri vinnu árið 2023 og ítrekar nú þá afstöðu sína.
Þetta kemur fram í áliti nefndarinnar sem birt var á vef Alþingis í gær.
Nefndin fjallaði um eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar frá því í september. Þar kemur fram að ráðuneytið hafi lítið sem ekkert unnið að því að skýra stöðu hljómsveitarinnar frá úttekt embættisins árið 2023 og að málinu hafi ítrekað verið frestað.
Skoða aðkomu Reykjavíkurborgar
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið sagði nefndinni að endurskoðun væri í undirbúningi. Ráðuneytið hyggst leggja til lagabreytingar til að skýra stöðu sveitarinnar. Meðal þess sem það vill skoða er hvort breyta eigi eignarhaldinu og haga aðkomu Reykjavíkurborgar með öðrum hætti.
Samkvæmt tónlistarlögum er hljómsveitin eign íslensku þjóðarinnar og sjálfstæð stofnun með sérstakan fjárhag. Lögin kveða á um að ríkissjóður greiði 82% af rekstrarkostnaði og borgarsjóður Reykjavíkur 18%.
Hljómsveitin er skráð sem A-hluta stofnun í ríkisreikningi. Ríkisendurskoðun telur að skýrara rekstrarform myndi varpa ljósi á réttarstöðu starfsfólks og forsendur fjármögnunar sveitarinnar til framtíðar.
Aftur halli á rekstrinum
Halli á rekstri hljómsveitarinnar nam 6,8 milljónum króna árið 2025 eftir 46,6 milljóna króna afgang árið áður. Eigið fé var neikvætt um 2,6 milljónir króna í árslok 2025. Tónleikagestum fækkaði úr um 80.600 starfsárið 2022–2023 í um 71.200 starfsárið 2024–2025. Áskrifendum hefur einnig fækkað og tekjur af miðasölu drógust saman á árunum 2023–2025.
Nefndin fagnar bættum samskiptum ráðuneytisins og hljómsveitarinnar um fjármál. Hún telur jafnframt mikilvægt að ráðuneytið styðji hljómsveitina við að setja sér raunhæf markmið um reksturinn, meðal annars um tekjur af miða- og áskriftarsölu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗