„Ég hef beðið lengi eftir þessu augnabliki“
Hlutabréf Bláa lónsins voru tekin til viðskipta í Kauphöllinni í morgun. Bláa lónið tilheyrir neysluvörugeiranum (e. Consumer Discretionary) og er 39. félagið sem tekið er til viðskipta á mörkuðum Nasdaq Nordic og Baltic í ár.
Bjöllunni var hringt í Kauphöllinni í morgun og segir Magnús Harðarson forstjóri Kauphallarinnar að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna að Bláa lónið fái aðgang að markaðnum og þeim fjármögnunarmöguleikum sem hann veitir.
„Þetta gefur félaginu og greininni auka þrótt og styður við vöxt hennar til framtíðar í þeim spennandi verkefnum sem fram undan eru hjá Bláa lóninu,“ segir Magnús í samtali við mbl.is.
Að undanskildum flugfélögum er Bláa lónið fyrsta ferðaþjónustufyrirtækið sem fer inn á markaðinn að sögn Magnúsar.
„Það er verið að opna almennum fjárfestum leið inn í þessa atvinnugrein í fyrsta sinn, sem er mjög mikilvægt og allur almenningur getur tekið þátt í vegferðinni með félaginu,“ segir Magnús.
Spurður út í tilfinninguna segir Magnús:
„Hún er æðisleg. Ég hef beðið lengi eftir þessu augnabliki. Ég hef litið Bláa lónið löngunaraugum í langan tíma og ég er gríðarlega ánægður með að þetta skuli vera að gerast núna.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗