Óveðrið stöðvaði ekki austfirska matgæðinga

Myrra Mjöll Daðadóttir, forstöðumaður Hallormsstaðaskóla, sá til þess að allt gengi upp á Matarmótinu. Ljósmynd/Skúli Björn Gunnarsson

„Það var ótrúlega góð þátttaka miðað við veður, bæði af framleiðendum og gestum,“ segir Myrra Mjöll Daðadóttir sem hafði umsjón með skipulagningu á Matarmóti Austurlands en það var haldið í sjötta sinn síðastliðinn laugardag í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.

Myrra áætlar að gestir hafi verið um 600 talsins þetta árið en í fyrra mættu yfir þúsund manns. Meginástæðan fyrir fækkun var óveður sem stóð fram yfir hádegi á Austfjörðum og lokaði fjallvegum. Það gerði það að verkum að níu af þeim 25 framleiðendum sem ætluðu að kynna vörur sínar urðu að hætta við á síðustu stundu.

Börnin sem komu á sýninguna slógu ekki hendinni á móti Gúddís úr Fljótsdalnum. Ljósmynd/Skúli Björn Gunnarsson

Sumar vörur seldust upp

Þeir framleiðendur sem tóku þátt voru ánægðir með viðtökur gesta og sumir seldu upp þær vörur sem þeir komu með að sögn Myrru. Sérstaklega var brauðmeti vinsælt en þrjú handverksbakarí buðu upp á nýbakað brauð og kruðerí.

Matarmótið var opið almenningi frá klukkan þrjú til fimm en á undan því gafst sýnendunum færi á að taka samtal sín á milli og einnig að kynna vörur sínar fyrir forsvarsmönnum veitingahúsa og verslana. Myrra segir að nokkur viðskiptasambönd hafi myndast á mótinu enda gerist slíkt alltaf þegar fólk nær að hittast.

Þrjú handverksbakarí neðan af Fjörðum mættu með nýbakað brauðmeti sem seldist hratt enda ekkert starfandi bakarí á Egilsstöðum. Ljósmynd/Skúli Björn Gunnarsson

Töfruðu fram smárétti úr austfirsku hráefni

Ekki var nóg með að hægt væri að smakka mat og drykki hjá sýnendum heldur mætti Ægir Friðriksson matreiðslumeistari og kennari í MK ásamt austfirskum nema og töfruðu þeir fram smárétti úr austfirsku hráefni. Til viðbótar við matvæli kynntu smáframleiðendur æðardúnssængur, sápur og vörur úr bývaxi, svo nokkuð sé nefnt. Einnig voru nemendur í skapandi sjálfbærni við Háskóla Íslands á Hallormsstað á staðnum og kynntu námið sem þar fer fram.

Markmiðið með Matarmóti Austurlands er að efla tengsl milli framleiðenda og neytenda og vekja athygli á austfirskri framleiðslu. Austurbrú heldur utan um verkefnið sem var að þessu sinni í samstarfi við Hallormsstaðaskóla sem Myrra Mjöll veitir forstöðu.

Nemendur í skapandi sjálfbærni við HÍ á Hallormsstað fönguðu athygli gesta með glansandi eimingartæki fyrir olíur. Ljósmynd/Skúli Björn Gunnarsson

Salir á neðri hæð Sláturhússins fylltust af fólki síðdegis á laugardag á Matarmótinu. Ljósmynd/Skúli Björn Gunnarsson

KHB brugghús á Borgarfirði eystra hefur sópað til sín verðlaunum fyrir veigar sínar sem gestir gátu bragðað á í hófi. Ljósmynd/Skúli Björn Gunnarsson

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab