Kallaður inn í íslenska landsliðshópinn

Hilmar Pétursson.

Hilmar Pétursson. mbl.is/Karítas

Hilmar Pétursson leikmaður Keflavíkur hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn í körfubolta.

Landsliðið kemur saman til æfinga á sunnudaginn fyrir leikina gegn Bosníu og Tyrklandi í undankeppni HM 2027.

Leikurinn gegn Bosníu fer fram í Laugardalshöll næstkomandi fimmtudag og Ísland mætir síðan Tyrklandi í Istanbúl sunnudaginn 29. nóvember.

Upphaflega voru bara 15 leikmenn í landsliðshópnum en Craig Pedersen landsliðsþjálfari hefur ákveðið að kalla Hilmar, sem hefur farið á kostum með Keflavík, inn í hópinn.

Hilmar á að baki fjóra landsleiki.

Landsliðshópurinn.

Landsliðshópurinn. Ljósmynd/KKÍ

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab