Spænskir fjölmiðlar gera grín að kveðjumyndbandi Gabriel – „Eins og hann sé goðsögn hjá United“

JJ Gabriel, 16 ára leikmaður Manchester United, hefur vakið mikla athygli eftir að hann birti kveðjumyndband á samfélagsmiðlum þar sem hann staðfesti brottför sína frá félaginu.

Gabriel er á leið til Real Madrid í janúar en hann hefur ekki leikið eina einustu mínútu með aðalliði United.

Spænskir fjölmiðlamenn hafa gagnrýnt myndbandið harðlega og telja það full dramatískt fyrir svo ungan leikmann.

„Þessi strákur hefur ekki spilað eina einustu mínútu fyrir Manchester United. Samt kveður hann eins og hann sé goðsögn hjá félaginu,“ sagði Juanma Castano í útvarpsþættinum El Partidazo de Cope.

Samkvæmt Sky Sports eru forráðamenn United einnig ósáttir við myndbandið, enda hafi Gabriel birt það án þess að láta félagið vita.

United er jafnframt sagt íhuga lögsókn komi í ljós að önnur félög hafi haft ólöglegt samband við leikmanninn.

Fari félagaskiptin í gegn fær United aðeins um 300 þúsund pund í uppeldisbætur fyrir Gabriel.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab