Spánverjar fresta ákvörðun um þátttöku í Eurovision 2027 – Lang veigamesta sniðgangan
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 20. nóvember 2026 10:30
Spánverjar eru ein af fimm þjóðunum sem greiða mest til Eurovision og fá sjálfkrafa þátttökurétt í úrslitum. Myndir/Wikipedia/Getty
Stjórn spænska ríkissjónvarpsins, RTVE, hefur frestað ákvörðun um þátttöku í Eurovision söngvakeppninni árið 2027 sem fram fer í Búlgaríu. Af sniðgönguþjóðunum síðastliðið vor eru Spánverjar langveigamestir.
Spænski miðillinn ESC plus greinir frá þessu.
Óvíst er hvort að Spánverjar taki þátt í Eurovision á næsta ári. Stjórn ríkissjónvarpsins RTVE hefur frestað ákvörðun.
Spánverjar voru á meðal fimm sniðgönguþjóða síðustu keppni, ásamt Íslendingum, Hollendingum, Írum og Slóvenum. Það var vegna þátttöku Ísraelsmanna og hernaði þeirra á Gaza ströndinni.
Sjá einnig:
Ísland ekki á lista 36 þjóða sem taka þátt í Eurovision
Tvær þjóðanna, Írar og Hollendingar, hafa þegar tilkynnt að þær munu ekki taka þátt á næsta ári og af sömu ástæðu. Frestur til að taka ákvörðun er í desember. Íslendingar og Slóvenar hafa beðið um frest.
Sjónvarpsstjórinn vill ekki taka þátt
Spánverjar hugðust taka ákvörðun þann 16. september síðastliðinn. Í þrígang hefur stjórnin ekki getað komist að niðurstöðu og hefur frestað ákvörðun sinni. Sjónvarpsstjóri RTVE, Jose Pablo Lopez, hefur þegar lýst þeirri skoðun sinni að Spánverjar ættu að halda sniðgöngu sinni áfram árið 2027. Ekkert hefði breyst varðandi Ísrael og Gaza síðan í síðustu keppni.
Sniðganga Spánverja skiptir EBU og Eurovision keppnina langmestu máli. Spánverjar eru ein af þeim fimm þjóðum sem borga mest til keppninnar og fá sjálfkrafa sæti í úrslitum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗