Þorsteinn J. hélt að málinu væri lokið en svo var ekki: „Nú er sá maður látinn“

„Það kemur til mín fyrir fáeinum vikum mál sem ég var að fjalla um mjög mikið sem var afbrot Skeggja Ásbjarnarsonar, kennara í Lauganesskólanum, á drengjum og stúlkum í áratugi,“ segir fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson, hélt hann að málinu væri lokið en svo er ekki, nú hefur maður sem hann ræddi við á sínum tíma látist. 

Þorsteinn fjallaði mikið um mál Skeggja í miðli sínum TV1 Magazine en fyrir nokkrum árum gerði Þorsteinn útvarpsþætti fyrir Rás 1 um meint kynferðisbrot Skeggja gegn nemendum í Laugarnesskóla, þar sem Skeggi var kennari í áraraðir en hann stýrði einnig barnaþætti í Ríkisútvarpinu. Þættina vann Þorsteinn í samstarfi við Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðing. Skeggi var kennari í Laugarnesskóla frá 1943-1977 og lést 1981. 

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg í september síðastliðnum kom fram að Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hafi átt fund með brotaþolum Skeggja, lagði borgarstjóri áherslu á að hópurinn leiti til ríkisins um sanngirnisbætur. 

Sjá einnig: Hildur hitti brotaþola Skeggja - „Þeim er trúað núna“

Mál á borð við Jimmy Savile

Þorsteinn ræddi um þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Segir Þorsteinn að hann hafi haldið að málinu hefði verið lokið á sínum tíma. 

„Ég talaði þá við Katrínu Jakobs sem var þá forsætisráðherra, hún tók saman frumvarp ásamt stjórnsýslunni og setti inn í þingið. Þetta frumvarp um sanngirnisbætur deyr svo í þinginu. Núna er komið fram nýtt frumvarp þar sem er ekki minnst á þá sem hafa orðið fyrir líkamlegu eða andlegu ofbeldi í skólakerfinu. Nú er þetta frumvarp í samráðsgátt,“ segir Þorsteinn. 

„Með öðrum orðum; okkar minnstu bræður og systur sem lentu í þessu ítrekað, þetta er mál á borð við Jimmy Savile í Bretlandi, þetta eru tugir ef ekki hundruð barna, þau hafa ekki enn fengið greiddar neinar bætur. Bætur eru bara táknrænar í þessu samhengi, upphæðir skiptir engu máli, það er þessi endapunktur þar sem kerfið segist bera ábyrgð á þessu.“

Nú þarf að forgangsraða

Ætlar hann að taka þetta aftur upp á vettvangi TV1 Magazine. 

„Vegna þess að síðast í gær var ég að tala við son eins þeirra sem ég talaði við fyrir þremur árum, nú er sá maður látinn. Þetta fólk, menn aðallega og konur, er að deyja frá þessum rétti sínum að fá sanngirnisbætur,“ segir hann. 

„Þetta finnst mér rosalega stórt mál og þess vegna hef ég ekki áhyggjur af því hvort þingmenn séu að skipta um flokka, vegna þess að stjórnsýslan, kerfið, og pólitíkin, alþingismenn, á að setja endapunkt þannig að við sjáum aftan á svona mál, sem kosta í sjálfu sér ekki mjög mikið. Mér finnst í sjálfu sér rosalega skrýtið að við séum svona hirðulaus um þetta. Þegar ég tala um kerfið þá er kerfið bara fólk sem er í stjórnsýslunni og annað, þetta er ekki vont fólk, pólitíkusar eru ekki vont fólk, en við þurfum að forgangsraða. Þarna þurfum við að ýta á og það er ég að fara að gera núna. Mér finnst það skipta ótrúlega miklu máli að við gleymum þessu ekki.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab