27 milljónir fyrir sjö mánuði: Gagnrýnir helmingshækkun
Fulltrúi Framsóknarflokksins í byggðarráði Skagafjarðar, gagnrýnir verulega hækkun á kostnaði sveitarfélagsins vegna reksturs skíðasvæðisins í Tindastóli. Samkvæmt nýjum samningi við skíðadeild Tindastóls munu mánaðarlegar greiðslur sveitarfélagsins hækka um helming miðað við fyrri samning.
Athygli vekur að aðalstjórn Ungmennafélagsins Tindastóls sagði fyrr á árinu upp gildandi rekstrarsamningi við sveitarfélagið á þeim forsendum að reksturinn væri orðinn of umfangsmikill og ábyrgðarmikill fyrir skíðadeildina. Nú hefur byggðarráð hins vegar samþykkt að semja á ný við skíðadeildina um rekstur svæðisins til loka apríl 2027.
Samkvæmt nýju samningsdrögunum fær skíðadeildin 27 milljónir króna fyrir sjö mánaða rekstur. Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í byggðarráði Skagafjarðar, bendir á að upphæðin sé fimm milljónum króna hærri en fyrra árlegt framlag sveitarfélagsins, þrátt fyrir að nýi samningurinn gildi aðeins í sjö mánuði, en ekki tólf.
Vonir stóðu til annars
„Nú hefur hins vegar meirihluti Skagafjarðar ákveðið að semja aftur við Skíðadeild Tindastóls til 7 mánaða og greiða fyrir það 27 milljónir sem er hækkun á ári um 5 milljónir,“ segir Einar í bókun sinni við afgreiðslu málsins.
Hann segir að þar sem samningurinn nái aðeins yfir sjö mánuði feli hann í sér um helmingshækkun á mánaðarlegum greiðslum sveitarfélagsins.
Einar rifjar jafnframt upp að Magnús Barðdal, þáverandi formaður Ungmennafélagsins Tindastóls, hafi sagt fyrri samningnum upp fyrir hönd aðalstjórnar félagsins. Vonir hafi þá staðið til þess að reksturinn færðist til aðila með meira bolmagn og faglega getu til að sinna honum.
Telur samninginn enga framtíðarlausn
Einar segir ánægjulegt að rekstur skíðasvæðisins sé tryggður í vetur en gagnrýnir að ekki hafi verið leitað annarra leiða til að tryggja reksturinn til lengri tíma.
„Þó það sé fagnaðarefni að rekstur svæðisins sé tryggður í vetur þá er þetta því miður engin lausn til framtíðar á þeim vandamálum sem verið hafa.“
Hann bendir jafnframt á að ekki hafi verið reynt að bjóða reksturinn út til utanaðkomandi aðila, þótt flest önnur skíðasvæði landsins séu ýmist rekin af einkaaðilum með stuðningi sveitarfélaga eða beint af sveitarfélögunum.
„Ég harma því að hér hafi ekki verið reynt að leita betri langtímalausna fyrir rekstur svæðisins með samningi til lengri tíma og þá við aðila sem treysta sér í rekstur sem þennan.“
Samþykkt með tveimur atkvæðum
Samkvæmt fundargerð byggðarráðs óskaði skíðadeild Tindastóls eftir því að fjárframlag vegna samningsins yrði greitt út á sjö mánuðum í stað tólf, eins og upphaflega hafði verið gert ráð fyrir. Greiðslufyrirkomulaginu var breytt í samræmi við þá ósk.
Byggðarráð samþykkti samningsdrögin með tveimur atkvæðum og fól sveitarstjóra að ganga til samninga við skíðadeildina.
Einar sat hjá við afgreiðslu málsins.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗