„Söguleg stund“ í samskiptum stórveldanna

Putin, Xi og Trump funduðu í gær.

Putin, Xi og Trump funduðu í gær. AFP

Sögulegur fundur forseta Bandaríkjanna, Kína og Rússlands í vikunni hefur verið í brennidepli í fjölmiðlum um allan heim. Fjölmiðlar í ríkjunum þremur hafa lagt ólíkt mat á þýðingu fundarins.

Bandaríkin

Bandaríska fréttastöðin CNN sagði fundinn að mestu hafa verið „vel tímasett tækifæri til myndatöku“ fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta.

„Fyrir Xi og Pútín er líklegra að fundarins verði minnst sem staðfestingar á þeirri sýn þeirra að valdajafnvægið í heiminum sé að taka grundvallarbreytingum þeim í hag,“ sagði CNN.

Edward Wong, blaðamaður hjá The New York Times, skrifaði að Xi Jinping og Vladimír Pútín væru að „umbreyta heimsskipaninni með því að svipta Bandaríkin þeirri stöðu að vera eina stórveldi heims“.

Fox News lýsti fundinum sem „sögulegri stund í alþjóðlegum samskiptum“. Að sögn stöðvarinnar vakti Trump máls á því að fækka kjarnavopnum, ræddi stríðið í Úkraínu og fullyrti að Bandaríkin hefðu yfirburði á sviði gervigreindar.

Kína

Kínverskir fjölmiðlar sögðu fundinn hafa verið „árangursríkan“ og að áhersla Xi á frið hefði gert hann að veruleika.

„Margir greinendur telja að líklega hefði verið erfitt að koma þessum sögulega fundi á án þrautseigju Kínverja og þess að þeir tóku að sér að halda hann,“ sagði í leiðara Global Times, sem nýtur stuðnings kínverskra stjórnvalda.

Þar sagði jafnframt að þótt aðstæður væru ólíkar í Kína, Rússlandi og Bandaríkjunum mætti komast hjá árekstrum ríkjanna.

„Xi stýrir fundi leiðtoga Kína, Rússlands og Bandaríkjanna“ var aðalfyrirsögnin á forsíðu Shenzhen Evening News í dag. Fundurinn var einnig efstur á baugi á kínverskum samfélagsmiðlum, þar sem ströng ritskoðun ríkir.

Rússland

Rússneska blaðið Komsomolskaja Pravda, sem styður rússnesk stjórnvöld, kallaði viðræðurnar „fundinn sem Rússland á skilið“.

„Leiðtogar tveggja andstæðra fylkinga settust við sama borð. Rússland á raunar mikinn heiður skilinn fyrir það,“ sagði blaðið.

Rússneska viðskiptablaðið Kommersant fjallaði um áhyggjur af því að leiðtogarnir þrír vildu skipta heiminum í áhrifasvæði. Þeir kynnu til dæmis að taka ákvarðanir sem vörðuðu Úkraínu án aðkomu stjórnvalda í Kænugarði eða annarra Evrópuríkja.

„Þessir þrír telja sig enga aðra þurfa til að taka allar ákvarðanir,“ skrifaði Andrej Kolesníkov, reyndur fréttaritari blaðsins.

Kolesníkov kvaðst hafa spurt Pútín, svo að hann heyrði, hvort þetta væri „eins konar Jalta 2.0“. Þar vísaði hann til Jaltaráðstefnunnar árið 1945, þar sem leiðtogar Vesturveldanna og Sovétríkjanna ræddu skipan Evrópu eftir stríð.

„Hann hugsaði sig um áður en hann svaraði. Svo kinkaði hann kolli,“ skrifaði Kolesníkov og dró þá ályktun að Pútín liti sjálfur svo á og að metnaðurinn stæði til þess að endurmóta heiminn.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab