Gert að greiða rúmar tvær milljónir

Maðurinn var sakfelldur fyrir að aka þrívegis undir áhrifum amfetamíns á þessu ári þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökurétti. Ljósmynd/Colourbox

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann til að greiða samtals 2.069.737 krónur í sekt og sakarkostnað.

Maðurinn var sakfelldur fyrir að aka þrívegis undir áhrifum amfetamíns á þessu ári þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökurétti. Hann var sviptur ökurétti í fimm ár frá birtingu dómsins.

Dómurinn féll í fyrradag. Sektin nemur 1.638.000 krónum og sakarkostnaðurinn 431.737 krónum. Greiði maðurinn sektina ekki innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins þarf hann að sæta fangelsi í 52 daga.

Stöðvaður á 107 kílómetra hraða

Lögregla stöðvaði manninn á Reykjanesbraut við Miðgarð í Garðabæ 3. febrúar. Hann ók á 107 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraðinn var 80 kílómetrar á klukkustund. Við leit á manninum fann lögregla 7,25 grömm af amfetamíni og 1,64 grömm af maríhúana. Hann var einnig sakfelldur fyrir hraðaksturinn og vörslu fíkniefnanna.

Lögregla stöðvaði manninn aftur á Dalbrekku í Kópavogi 17. júní og á Kársnesbraut við Hábraut 14. júlí. Amfetamín mældist í blóðsýnum úr honum í öll þrjú skiptin.

Fyrri brot höfð til hliðsjónar

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu og hafði ekki boðað forföll. Honum höfðu verið birt ákæra og fyrirkall þar sem tekið var fram að dæma mætti málið að honum fjarstöddum. Dómurinn taldi brotin sönnuð með vísan til rannsóknargagna.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að maðurinn hafði áður verið dæmdur fyrir akstur undir áhrifum og akstur sviptur ökurétti. Hann hafði einnig gengist undir sekt hjá lögreglustjóra 4. febrúar fyrir akstur sviptur ökurétti. Þar sem hann ók á Reykjanesbraut daginn áður en hann gekkst undir þá sekt var honum dæmdur hegningarauki vegna aksturs án ökuréttar í það sinn.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab