Englendingar sektaðir vegna níðsöngva
Enska knattspyrnusambandinu hefur verið gert að greiða 15.000 evra sekt vegna níðsöngva stuðningsmanna í 3:2-sigri Englands á Spáni í Þjóðadeildinni í Madríd í vikunni.
UEFA setti einnig skilorðsbundið bann við miðasölu á einn útileik. Það tekur gildi ef sambærilegt atvik kemur upp innan tveggja ára.
Refsingin er vegna niðrandi söngva um páfann og írska lýðveldishyggju.
„Við munum ekki líða þessa óásættanlegu og afar meiðandi söngva,“ sagði enska knattspyrnusambandið í yfirlýsingu og bætti við að það myndi vinna með lögreglu að því að bera kennsl á þá sem bæru ábyrgð.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗