Biður United afsökunar: „Siðlaust af minni hálfu“

Maðurinn hefur beðið Manchester United afsökunar.

Maðurinn hefur beðið Manchester United afsökunar. AFP/Oli Scarff

Maðurinn sem stýrði drónanum og tók upp og birti myndskeið af fyrstu æfingu Mauricio Pochettino sem knattspyrnustjóra Manchester United hefur beðist afsökunar og fjarlægt myndskeiðið af YouTube.

Myndskeiðið, sem var um 12 mínútur að lengd, var tekið upp yfir æfingasvæði Manchester United í Carrington og sýndi Pochettino stýra taktískum æfingum liðsins fyrir stórleikinn gegn Liverpool á Anfield á sunnudaginn. Sky Sports fjallar um málið.

Mikla athygli vakti þegar myndefnið lak á netið, enda var um lokaða æfingu að ræða. Dróninn náði meðal annars að fanga þegar Pochettino fór yfir ákveðin atriði með leikmönnum sínum.

Algjört dómgreindarleysi

Stjórnandi YouTube-rásarinnar CC Overview sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem hann viðurkenndi mistök sín og baðst afsökunar á upptökunni.

„Þetta var algjört dómgreindarleysi af minni hálfu. Þótt flugið hafi verið löglegt samkvæmt reglum um notkun dróna geri ég mér fulla grein fyrir því að það var siðlaust af minni hálfu,“ sagði hann meðal annars.

Hann kvaðst hafa ætlað að ná myndum af Pochettino í æfingabúningi Manchester United svo stuðningsmenn gætu séð hann í fyrsta sinn við störf hjá félaginu. Hann hefði hins vegar ranglega gert ráð fyrir því að eiginlegar æfingar væru ekki hafnar og að aðeins væri um saklausa upphitun að ræða.

Maðurinn bað Manchester United, Pochettino og leikmenn liðsins afsökunar og sagðist vonast til þess að uppátækið hefði ekki áhrif á úrslit leiksins.

Hann tók jafnframt fram að Liverpool eða önnur knattspyrnufélög hefðu ekki komið að ákvörðun hans um að taka upp æfinguna. Myndskeiðið hefur nú verið fjarlægt af YouTube-rás hans, en það hefur þegar dreifst víða um samfélagsmiðla, meðal annars á X, Instagram og TikTok.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab