Fara fram á svör frá Einari og slökkviliðinu vegna hjólhýsabyggðarinnar eftir misvísandi yfirlýsingar

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Föstudaginn 20. nóvember 2026 09:32

Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs. Mynd: Framsóknarflokkurinn.

Borgarfulltrúar Vinstrisins og Sósíalistaflokksins hafa farið fram á svör frá Einari Þorsteinssyni formanni borgarráðs og Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins, vegna yfirlýsinga þess fyrrnefnda um að athugasemdir slökkviliðsins hafi haft töluvert að segja um að lokað hafi verið fyrir alla aðstöðu fyrir íbúa hjólhýsabyggðar sem verið hefur á Sævarhöfða í Reykjavík. Svör slökkviliðsstjóra við fyrirspurn ritstjóra Samstöðvarinnar eru hins vegar ekki í samræmi við yfirlýsingar Einars.

Í byrjun mánaðarins var lokað fyrir rafmagn og vatn í byggðinni og sömuleiðis húsnæði þar sem íbúar gátu fengið afnot af þvottavél og þurrkara. Tilkynnt var um þetta í byrjun september síðastliðins en í samtali við Mbl.is þann 5. september sagði Einar:

„„Forsagan er sú að við þurftum að loka nokkrum húsnæðum, bara að kröfu slökkviliðsins. Það var gert í sumar. Þá var tekin ákvörðun um að segja upp leigusamningi við nokkra aðila, meðal annars þarna á Sævarhöfða og í Gufunesi og úti í Skerjafirði.““

„„Síðan var slökkviliðið bara með það miklar athugasemdir að það var ekki hægt að halda því áfram ... Þess vegna var þessum leigusamningi uppi á Sævarhöfða sagt upp og þá hefur það í för með sér að þarna mun verða engin starfsemi og svæðið er að fara í uppbyggingu. Þá er eðlilegt að þau fari þaðan eins og aðrir.““

Slökkviliðsstjórinn

Gunnar Smári Egilsson ritstjóri Samstöðvarinnar greinir hins vegar frá því í færslu í Facebook-hópnum Rauði þráðurinn að hann hafi sent Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins fyrirspurn vegna þessara orða Einars:

„Ég sendi fyrirspurn til slökkviliðs höfuðborgarasvæðisins: Er það rétt sem sagt var í einhverri frétt að rafmagn og vatn hafi verið tekið af hjólhýsabyggðinni á Sævarshöfða að kröfu slökkviliðsins? Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, svaraði fljótt: „SHS fór í vettvangsskoðun í kjölfar bruna í janúar 2025, en ekki var gert mál með kröfum enda aðeins um könnun á aðstæðum eftir brunann að ræða. Við erum ekki með opið mál, kröfur varðandi brunavarnir eða lokun svæðisins.““

Ljóst virðist því að svör slökkviliðsstjórans séu ekki í samræmi við fullyrðingar formanns borgarráðs um aðkomu slökkviliðsins að málefnum hjólhýsabyggðarinnar.

Á fundi borgarráðs í gær lagði Sanna Magdalena Mörtudóttir áheyrnarfulltrúi Vinstrisins fram fyrirspurn til Einars en hún og Gunnar Smári hafa undanfarin ár verið pólitískir samherjar og því afar líklegt að hennar fyrirspurn byggi á áðurnefndri færslu Gunnars Smára:

„Hvernig stendur á því að formaður borgarráðs vísar opinberlega til einhvers sem á ekki við rök að styðjast varðandi brunavarnir og athugasemdir Slökkviliðsins vegna Sævarhöfða þar sem hjólabúar hafa dvalið.“

Silja Sóley Birgisdóttir áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins í borgarráði beindi hins vegar fyrirspurn að slökkviliðinu sjálfu. Fer hún fram á upplýsingar um afskipti Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins af lóðinni þar sem hjólhýsabyggðin hefur staðið. Spyr Silja Sóley hvenær síðast fór fram úttekt eða skoðun á svæðinu og hver hafi verið tilmæli slökkviliðsins. Einnig spyr hún hvort gerðar hafi verið kröfur um úrbætur á brunavörnum og hvenær þær kröfur hafi legið fyrir. Spyr Silja Sóley einnig að því að ef umræddum kröfum hafi ekki verið mætt, hvaða sektir hafi þá átt að leggjast á borgina og hvenær þær hafi þá átt að taka gildi. Að lokum spyr Silja Sóley hvort slökkviliðið hafi á einhvern hátt hvatt til þess að svæðinu yrði lokað.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab