Meistararnir komnir í gang

Jalen Brunson fagnar í nótt.

Jalen Brunson fagnar í nótt. AFP/David Berding

Meistarar New York Knicks höfðu betur gegn Minnesota Timberwolves, 102:99, í bandarísku NBA-deild karla í körfubolta í Minnesota í nótt. 

Þetta var þriðji sigur New York í röð en liðið er nú með níu sigra og sex töp eftir að hafa byrjað tímabilið brösuglega. Minnesota hefur unnið ellefu leiki og tapað fimm. 

Jalen Brunson var atkvæðamestur hjá New York en hann skoraði 21 stig, tók tvö fráköst og gaf sjö stoðsendingar. 

Hjá Minnesota skoraði Jonathan Kuminga 23 stig, tók þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. 

San Antonio Spurs vann þá Los Angeles Clippers, 124:112, í San Antonio. 

San Antonio er með þrettán sigra og þrjú töp. 

Victor Wembanyama fór á kostum og skoraði 32 stig en ásamt því tók hann ellefu fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. 

Önnur úrslit: 

Memphis Grizzlies 126:98 Golden State Warriors
Milwaukee Bucks 114:124 Portland Trail Blazers

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab