Veiði áfram góð hjá línuskipunum

Páll Jónsson GK landaði 115 tonnum í Grindavík í byrjun vikunnar. Ljósmynd/SVN/Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, halda áfram að fiska vel, að því er fram kemur í færslu Síldarvinnslunnar (SVN).

Þar segir að Páll Jónsson hafi landað 115 tonnum í Grindavík á mánudag og Sighvatur hafi landað 90 tonnum á Höfn í Hornafirði á þriðjudag.

Haft er eftir Jónasi Inga Sigurðssyni, skipstjóra á Páli Jónssyni, að hann hafi verið mjög sáttur við veiðiferðina.

Gerðu stutt stopp við Eyjar

„Við vorum á Héraðsflóanum og tókum þar þrjár lagnir. Þar var hörkuveiði en aflinn var nánast eingöngu þorskur.“

Í þessum þremur lögnum hafi fengist tæp hundrað tonn.

Svo hafi „brælt hressilega“ og þá hafi verið haldið af stað suður til að landa í Grindavík.

„Það var staldrað við á leiðinni við Eyjar og þar tekin ein lögn sem gaf 18 tonn af blönduðum afla. Enn lætur ýsan bíða eftir sér en hún hlýtur að fara að koma,“ bætir Jónas Ingi við.

Þorskur var fimmtungur aflans

Sighvatur GK var í sínum túr að veiðum í Meðallandsbuktinni, að sögn Aðalsteins Rúnars Friðþjófssonar skipstjóra, en það eru fiskimið laust undan suðurströndinni, milli Sjávarmela og Skaftafellsfjöru.

„Við tókum fjóra og hálfa lögn og fengum blandaðan afla,“ segir Aðalsteinn. Þorskur hafi bara verið um fimmtungur aflans.

„Fiskurinn var bæði stór og fallegur. Það var ekkert sérstaklega gott veður og reyndar var það alveg vitlaust síðasta daginn,“ bætir hann við.

„Að lokinni löndun á Höfn var haldið austur fyrir land og nú er býsna gott veðurútlit og reyndar einnig veiðiútlit,“ segir Aðalsteinn Rúnar á vef SVN.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab