S8 kemur til móts við kaupendur

Bergur Jóhannsson, verkefnastjóri hjá S8, segir að með Sameign geti kaupendur tekið lægra lán og eignast íbúðina að fullu síðar. mbl.is/Eyþór

Þeir sem eiga reglulega leið um miðborg Reykjavíkur hafa eflaust tekið eftir nýju byggingunum sem hafa risið sunnan við Miklubraut, í grennd við Landspítalann. Þar á horninu er Hlíðarhorn, tíu samtengdar byggingar á þremur til fimm hæðum með stórum, sólríkum inngarði og bílakjallara undir öllu svæðinu. Bygginga- og þróunarfélagið S8 ehf. stendur að verkefninu og sér um sölu íbúðanna, sem eru fjölbreyttar að stærð og gerð.

Til að auðvelda fólki íbúðakaupin býður félagið alveg nýja leið, S8-Sameign. Með Sameign kaupir kaupandi 75% hlut í íbúð eða meira en S8 heldur eftir 25% hlut eða minna sem kaupandinn getur keypt síðar. Þannig þarf að fjármagna minni hluta kaupverðsins í upphafi.

Bergur Jóhannsson, verkefnastjóri hjá S8, segir leiðina meðal annars svar við þeim hindrunum sem fólk mæti við fjármögnun íbúðakaupa.

„Við erum með marga einstaklinga sem koma og gera tilboð í íbúðir hjá okkur en standast svo ekki greiðslumat, þótt þeir séu með góðar tekjur og eigið fé. Sameign getur hjálpað þeim því kaupandinn þarf að taka lægra lán,“ segir Bergur.

Hlíðarhorn stendur við rætur Öskjuhlíðar. Þar mynda tíu samtengdar byggingar skjól um stóran og sólríkan inngarð. mbl.is/Eyþór

Hvati til að eignast íbúðina að fullu

Bergur segir markmiðið ekki vera að S8 haldi til lengri tíma í eignarhlutinn heldur að auðvelda fólki kaupin og skapa hvata til að eignast íbúðina að fullu.

„Við erum ekki að halda í hlutinn bara til þess að halda í hann. Kaupandinn getur keypt okkar hlut innan þriggja ára á því verði sem samið var um í upphafi, að viðbættum verðbótum. Þannig nýtur hann þeirrar eignamyndunar sem hefur orðið á þeim tíma. Það er í raun það sem er sérstakt við okkar leið,“ segir Bergur.

Í því felst að þótt markaðsverð íbúðarinnar hafi hækkað miðast kaupverð hlutar S8 við upphaflegt verð að viðbættum verðbótum, sé hann keyptur innan þriggja ára. Eftir þann tíma miðast kaup á hlutnum við markaðsverð. Sameignarsamningurinn getur staðið í allt að tíu ár.

Samhliða kaupunum er gerður leigusamningur um eignarhlut S8. Samkvæmt upplýsingum félagsins er ársleigan 3,5% af þeim hlut fyrstu þrjú árin og verðtryggð. Greidd leiga gengur upp í kaupverðið ef hluturinn er keyptur innan þess tíma. Við kaup á uppsettu verði býður félagið niðurfellingu leigunnar fyrstu þrjú árin. Eftir þrjú ár hækkar ársleigan í 6,5% ef kaupandi hefur ekki keypt hlutinn.

Reiknivélin hjálpar fólki að átta sig á kostnaðinum

Til að gera fyrirkomulagið aðgengilegra hefur S8 sett upp reiknivél á heimasíðu sinni. Bergur segir hana hafa orðið til samhliða því að Sameign fór af stað af krafti.

„Þetta eru stórar ákvarðanir. Fólk er að taka lán upp á margar milljónir og þarf að geta treyst öllu í kringum sig. Reiknivélin gefur fólki hugmynd um hvernig þetta virkar og hvað það er að borga,“ segir hann.

Íbúðirnar í Hlíðarhorni eru frá um 50 upp í 150 fermetrar og hverri þeirra fylgja svalir, sólpallur eða þaksvæði. mbl.is/Eyþór

Í reiknivélinni er meðal annars hægt að breyta kaupverði, eigin fé, eignarhlut S8 og lánskjörum og sjá hvernig það hefur áhrif á áætlaðar mánaðarlegar greiðslur. Þar má einnig bera saman hefðbundin kaup og sameignarleiðina og skoða kostnað við að eignast hlut S8 síðar. Útreikningarnir eru til viðmiðunar og koma ekki í stað greiðslumats lánveitanda.

„Það er einfaldara að sjá þetta með reiknivél. Hvað þýðir að við eigum 25% af íbúðinni og hvað gerist eftir þriðja árið? Við viljum gefa fólki skýrari mynd af því hver kostnaðurinn er.“

Bergur segir mikla umferð vera á reiknivélinni, sem bendi til áhuga á fyrirkomulaginu, þótt hann hafi ekki nákvæmar tölur um notkun hennar.

Fjölbreyttar íbúðir við rætur Öskjuhlíðar

Sameignarleiðin stendur til boða við kaup á öllum íbúðum í Hlíðarhorni. Bergur segir þar fjölbreytta valkosti fyrir kaupendur, með íbúðum frá um 50 upp í 150 fermetra, í þremur gæðaflokkum. Nú þegar er byggingu á þremur stigagöngum lokið og verða þær sem eftir eru tilbúnar í skrefum á árinu 2027. Sala er einnig hafin á íbúðum sem verða tilbúnar til afhendingar á næstu mánuðum.

Bergur segir vandað efnisval einkenna íbúðirnar í Hlíðarhorni, sem eru afhentar fullbúnar með innréttingum, eldhústækjum og gólfefnum. mbl.is/Eyþór

„Þetta eru íbúðir á frábærum stað í Reykjavík og þær eru afhentar fullbúnar,“ segir hann og leggur áherslu á að hvergi sé notað gifs í byggingunni, að hver íbúð sé með sitt eigið loftræstikerfi og að hugað hafi verið sérstaklega að hljóðeinangrun allra íbúða.

Við hönnun íbúðanna var einnig lögð áhersla á birtu, rúma lofthæð og sérvalið vandað efnisval. Íbúðirnar eru afhentar með innréttingum, eldhústækjum og gólfefnum og hverri íbúð fylgja svalir, sólpallur eða þaksvæði. Staðsetningin hentar fólki á öllum aldri, ekki síst þeim sem vilja vera nálægt iðandi miðborgarlífinu. Í nágrenninu eru fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir, útivistarsvæði Öskjuhlíðar, verslanir, veitingastaðir, kaffihús og listasöfn. Þá er Tjörnin ekki langt undan.

Áhugasamir geta bókað skoðun og kynnt sér mismunandi útfærslur í sýningaríbúðum Hlíðarhorns.

Frekari upplýsingar má finna á s8.is og hlidarhorn.is.

Bergur segir íbúðirnar í Hlíðarhorni hafa rúma lofthæð og að hvergi hafi verið notað gifs í byggingunni. mbl.is/Eyþór

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab