Skortur hérlendis á bóluefni við sjúkdómi sem getur haft alvarlegar afleiðingar - „Mikil ásókn er nú í að komast í bólusetningu“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Föstudaginn 20. nóvember 2026 09:00

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Oddur Steinarsson, sérfræðingur í heimilislækningum, varaformaður Læknafélags Íslands og framkvæmdastjóri Heilsugæslunnar Kirkjusandi, varar við því í grein í Morgunblaðinu í dag að skortur sé hér á landi á bóluefni við smitsjúkdómnum ristli. Á sama tíma sé ásóknin í bólusetningu töluverð. Hann segir einnig að skipulag og framkvæmd bólusetninganna þvælist fyrir. Oddur minnir á að ristill geti verið sársaukafullur og í verstu tilfellunum haft í för með sér varanlega sjónskerðingu.

Samkvæmt vefnum Heilsuveru er Ristill (e. shingles) smitsjúkdómur sem eingöngu kemur fram hjá þeim sem hafa fengið hlaupabólu. Sjúkdómurinn kemur fram þegar varicella zoster veiran sem orsakar hlaupabólu nær að endurvirkjast. Við það koma fram sársaukafull útbrot í húð, oftast á öðrum helmingi líkamans. Ristill getur stundum sest á auga fólks en sjúkdómurinn er algengastur hjá þeim sem eru 50 ára og eldri.

Í grein Odds segir að í byrjun síðasta sumars hafi bóluefnið Shingrix við ristli verið skráð á Íslandi. Áður hafi þetta bóluefni verið á undanþágulyfseðli og við skráninguna hafi verðið á efninu lækkað um rúmlega helming. Í verri tilfellum geti veiran sem valdi ristli farið í auga og valdið varanlegri sjónskerðingu. Oft taki marga mánuði að losna við verki af völdum ristilsins. Þá bendi rannsóknir til þess að bólusetning við ristli geti lækkað tíðni heilabilunar um 20-30 prósent:

„Þetta hefur spurst hratt út og mikil ásókn er nú í að komast í bólusetningu.“

Hætt að bóka

Oddur segir að á Heilsugæslunni Kirkjusandi hafi 500 manns fengið bólusetninguna og 1.000 til viðbótar séu bókaðir fram í mars á næsta ári. Hins vegar sé stöðin hætt að taka við frekari bókunum enda séu birgðir af Shingrix að klárast í landinu.

Oddur segir einnig að framkvæmdin sjálf á bólusetningunni flæki málin. Blanda þurfi bóluefnið þar sem það komi til stöðvarinnar duftformi og því taki hver bólusetning lengri tíma en ella. Sömuleiðis sé stöðin að greiða með hverjum skammti þar sem hún þurfi að greiða 25.630 krónur fyrir einn skammt en verði að selja hann á 25.700 krónur og þá sé eftir að kaupa nálar, sprautur og greiða fyrir skammta sem fari forgörðum. Oddur minnir einnig á að miðað við verðhækkanir og fólksfjölgun vanti um einn og hálfan milljarð í fjármögnun heilusgæslustöðva. Á stöðinni þar sem hann starfi hafi einnig stytting vinnuvikunnar haft töluverð áhrif. Of fáir séu að sinna daglegum verkefnum, sem séu næg, og það hafi áhrif á bólusetningu við ristli.

Hann segir að lokum að apótek, heildsali og ríkið hagnist öll á hverjum skammti af bóluefninu á meðan þjónustuveitandinn þurfi einn að greiða með hverjum skammti:

„Hvernig á að vera hægt að gera átak í bólusetningum við ristli þegar staðan er þessi? Það er ekki furða að fólk komist ekki að og biðlistar hrannist upp þegar skipulagið er þetta.“

Grein Odds er hægt að lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab