Gagnaver EyrieDC fær lóð á Bakka
Áfanga var náð í uppbyggingu fyrirhugaðs gagnavers á Bakka norðan við Húsavík þegar fulltrúar sveitarfélagsins Norðurþings og fyrirtækisins EyrieDC undirrituðu lóðarleigusamning í gær vegna gagnaversins.
Það voru þeir Bergþór Bjarnason sveitarstjóri og Tom Frost frá EyrieDC sem undirrituðu samninginn sem er til 50 ára með möguleika á framlengingu.
Lóðin þar sem gagnaverinu er ætlaður staður er 8,2 hektarar að flatarmáli og er á iðnaðarsvæðinu á Bakka.
Í tilkynningu frá samningsaðilum segir að með samningnum tryggi EyrieDC sér lóðina að uppfylltum tilteknum gildistökuskilyrðum. Samningurinn sé mikilvæg forsenda fyrir áframhaldandi undirbúningi framkvæmda, en áformað er að þær hefjist næsta vor. Lóðaúthlutunin var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn Norðurþings þann 12. nóvember sl.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗