Gagnaver EyrieDC fær lóð á Bakka

Tom Frost frá EyrieDC og Bergþór Bjarnason undirrituðu í gær.

Tom Frost frá EyrieDC og Bergþór Bjarnason undirrituðu í gær. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Áfanga var náð í uppbyggingu fyrirhugaðs gagnavers á Bakka norðan við Húsavík þegar fulltrúar sveitarfélagsins Norðurþings og fyrirtækisins EyrieDC undirrituðu lóðarleigusamning í gær vegna gagnaversins.

Það voru þeir Bergþór Bjarnason sveitarstjóri og Tom Frost frá EyrieDC sem undirrituðu samninginn sem er til 50 ára með möguleika á framlengingu.

Lóðin þar sem gagnaverinu er ætlaður staður er 8,2 hektarar að flatarmáli og er á iðnaðarsvæðinu á Bakka.

Í tilkynningu frá samningsaðilum segir að með samningnum tryggi EyrieDC sér lóðina að uppfylltum tilteknum gildistökuskilyrðum. Samningurinn sé mikilvæg forsenda fyrir áframhaldandi undirbúningi framkvæmda, en áformað er að þær hefjist næsta vor. Lóðaúthlutunin var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn Norðurþings þann 12. nóvember sl.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab