Fólk steinhissa eftir að frúin svaraði því í beinni hvað væri skemmtilegast að gera
Samantha Tarkowski, eiginkona James Tarkowski, varnarmanns Everton, vakti mikla athygli þegar hún ræddi kynlíf þeirra hjóna af mikilli hreinskilni í sjónvarpsþáttunum Married to the Game.
Tarkowski, sem fagnaði 34 ára afmæli sínu á fimmtudaginn, kom fram í þáttunum ásamt eiginkonu sinni þar sem þau voru spurð hvað þeim þætti skemmtilegast að gera saman í frítímanum.
Samantha var ekki lengi að koma með óvænt svar.
„Hvenær er þessi þáttur eiginlega sýndur?“ spurði hún áður en hún svaraði hlæjandi: „Að ríða!“
Hún rifjaði síðan upp hvernig þau hefðu notið þess að fara saman upp í rúm þegar þau voru yngri.
„Manstu þegar við vorum yngri og ég sagði alltaf að þetta væri uppáhaldshluti dagsins? Að fara upp í rúm í lok dags, bara við tvö. Og svo að ríða. Mér finnst það enn mjög skemmtilegt,“ sagði Samantha.
Í þættinum ræddi hún einnig hversu stolt hún væri af eiginmanni sínum eftir að hann tók við fyrirliðabandinu hjá Everton.
Hún skrifaði honum fallegt kort þar sem hún hrósaði leiðtogahæfileikum hans og dugnaði.
Samantha bætti svo við með glotti að kvöldið hefði endað sérstaklega vel hjá þeim hjónum.
„Ég fékk að njóta mín þetta kvöld!“ sagði hún hlæjandi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗