Létu sprengjur rigna yfir Úkraínu
Rússar létu flugskeytum og drónum rigna yfir Úkraínu í nótt í umfangsmikilli árás, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Vladimír Pútín forseti hafði heitið „sársaukafullum“ viðbrögðum við árásum Úkraínumanna á Krímbrúna í vikunni.
Að minnsta kosti þrír létust í Kænugarði og tveir til viðbótar í Lviv, rafmagn fór af hlutum höfuðborgarinnar og mikilvægar samgöngubrýr urðu fyrir árásum, að sögn embættismanna.
Hinar mannskæðu árásir komu í kjölfar fundar Pútíns með Xi Jinping, forseta Kína, og Donald Trump Bandaríkjaforseta í Kína, þar sem gefin var út sameiginleg „yfirlýsing í átt að friði“ þar sem hvergi var minnst á nærri fimm ára innrás Rússa í Úkraínu.
„Eins og stendur er vitað að þrír hafa látist,“ skrifaði Vitalí Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, á Telegram á föstudag. Að minnsta kosti 15 til viðbótar særðust, að hans sögn.
Þrjár brýr yfir ána Dnípro urðu einnig fyrir árásum, sem gæti valdið enn frekari röskun á daglegu lífi í borginni.
Þá létust tveir á lestarstöð fyrir farþegalestir í útjaðri borgarinnar Lviv í vesturhluta landsins, að sögn héraðsstjórans.
Rússar hafa hert árásir sínar á Kænugarð undanfarna sex mánuði, í aðdraganda þess sem margir óttast að verði harðasti vetur stríðsins.
Rússneski herinn staðfesti í morgun að hann hefði gert umfangsmikla árás með flugskeytum og drónum og sagði skotmörkin vera hergagnaiðnaðarsvæði og samgönguinnviði í nokkrum héruðum, þar á meðal brýr í Kænugarði.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗