Suðurnesjalína 2 spennusett í dag

Undirbúningur Suðurnesjalínu 2 hófst árið 2005´. Ljósmynd/Aðsend

Suðurnesjalína 2 verður spennusett klukkan 16 í dag en með línunni fá  Suðurnes aðra tengingu við flutningskerfi raforku, sem eykur afhendingaröryggi og flutningsgetu til og frá svæðinu. Línan styrkir þannig grunn að daglegu lífi, atvinnuuppbyggingu, verðmætasköpun og orkuskiptum á Suðurnesjum, að því er fram kemur í tilkynningu.

„Suðurnesjalína 1 hefur hingað til verið eina flutningsleið raforku milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Önnur tenging auðveldar viðhald og viðbrögð við bilunum. Samhliða uppbyggingu tengivirkis á Njarðvíkurheiði og tengdra flutningsmannvirkja verður raforkukerfið sveigjanlegra og öruggara í rekstri. Aukin flutningsgeta styður bæði við raforkunotkun á Suðurnesjum og flutning raforku frá virkjunum á Reykjanesi,“ segir í tilkynningunni.

Suðurnesjalína 2 er 220 kV háspennulína milli tengivirkjanna í Hamranesi í Hafnarfirði og á Njarðvíkurheiði. Hún er um 30 kílómetra löng, að mestu loftlína en með jarðstreng næst Hamranesi.

Undirbúningur hófst 2005

Undirbúningur Suðurnesjalínu 2 hófst árið 2005. Framkvæmdir hófust árið 2016 en voru stöðvaðar eftir dóm Hæstaréttar árið 2017 þar sem heimild til eignarnáms var ógild. Í kjölfarið voru allir ferlar við undirbúning framkvæmda hjá Landsneti endurskoðaðir og bættir. 

Verkefnið fór síðan í nýtt umhverfismat og leyfisferli. Jarðvinna við loftlínuhluta Suðurnesjalínu 2 hófst að nýju í júlí 2024 en leyfisferli og dómsmál höfðu áhrif á framvindu verkefnisins. Mikill lærdómur varð af ferlinu og dómur Hæstaréttar í maí 2026 er staðfesting á sjónarmiðum Landsnets og þeirri málsmeðferð sem unnið er eftir við undirbúning framkvæmda.  

Stórt framfaraskref fyrir íbúa og atvinnulíf

„Með tilkomu Suðurnesjalínu 2 er stigið stórt framfaraskref fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðinu. Tryggara aðgengi að raforku leggur grunn að áframhaldandi vexti samfélagsins á Suðurnesjum og byggir undir verðmætasköpun, öryggi og lífsgæði á svæðinu. Það er mikið ánægjuefni að ljúka þessu stóra verkefni,“ er haft eftir Rögnu Árnadóttur forstjóra Landsnets.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab