Var aðeins 17 ára þegar hún kærði miðaldra danskennara fyrir áreitni - „Hann býður mér að verða sykurpabbinn minn“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Föstudaginn 20. nóvember 2026 08:00

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Mynd: GVA

Deilur standa yfir í samfélagi samkvæmisdansara í Reykjavík. Málið snýst um karlmann á sextugsaldri sem hefur gengið fast eftir því að fá að vera iðkandi hjá Dansfélagi Reykjavíkur þrátt fyrir að hópurinn sem hann telur sig eiga heima í sé með iðkendur á aldrinum 12–17 ára. Maðurinn hefur í þrígang verið kærður til lögreglu fyrir ósæmilega hegðun í garð unglingsstúlkna en öll málin voru felld niður þar sem þau þóttu ekki líkleg til sakfellingar. Þetta helst á RÚV fjallaði um málið í gær og ræddi þar við unga konu sem kærði manninn og eiganda dansskóla sem kærir sig ekki um að hafa manninn í félagi sínu.

Arna Sif Hauksdóttir Knútsdóttir er 22 ára í dag en var aðeins 17 ára gömul þegar maðurinn gerðist ágengur við hana í einkatímum. Meðal annars bauðst hann til að gerast sykurpabbi hennar og viðhafði við hana kynferðislegt tal, svo sem með því að spyrja hana út í BDSM-kynlíf.

„Hann býður mér að verða sykurpabbinn minn; að ég fái borgað fyrir að vera með honum,“ sagði Arna um samskipti sem áttu sér stað í seinasta tímanum sem hún sótti hjá manninum. Vildi maðurinn gera skriflegan samning um fyrirkomulagið og Arna lýsir því að hún hafi hreinlega frosið. Eftir tímann sagði hún móður sinni frá. Hún kærði manninn til lögreglu en árið 2023 var málið fellt niður.

„Ég brotnaði niður. Mér fannst kerfið brjóta á mér aftur og styðja þessa hegðun hjá honum. Mér fannst þetta í raun vera svona grænt ljós á að það mætti vera óviðeigandi við börn.“

Á síðasta ári reyndi maðurinn að skrá sig í keppnishóp hjá Dansskóla Köru. Þar eru iðkendur á aldrinum 12–17 ára. Eigandi skólans, Kara Arngrímsdóttir, kærir sig hvorki um að hafa manninn sem iðkanda né sem félagsmann í Dansfélagi Reykjavíkur sem er rekið innan vettvangs skólans. Maðurinn var afskráður úr hópnum og fékk námskeiðið endurgreitt en Kara bendir á að hann hafi í þrígang verið kærður fyrir ósæmilega hegðun. Dómstóll ÍSÍ felldi þó úr gildi ákvörðun félagsins um að synja manninum um aðild, en í málinu byggði félagið á skriflegum samskiptum mannsins við barnunga iðkendur þar sem hann skrifaði meðal annars: „til i eh perr?“ og talaði um sjálfsfróun.

Maðurinn fær því að vera í félaginu en fær ekki að taka þátt í keppnishópnum. Hann hefur skráð sig í annan hóp fyrir fullorðna hjá skólanum en þar er um að ræða fólk sem dansar sér til yndisauka. Kara telur manninn ekki eiga heima í slíkum hóp.

Kara veltir fyrir sér þessari stöðu. Hér er um að ræða mann sem hefur verið sakaður um ósæmilega hegðun í garð unglinga. Dómstóll ÍSÍ segir að ekki megi banna honum að vera félagsmaður, en þýðir það að þjálfarar hjá dansskólanum þurfi að sætta sig við að hafa hann í tímum hjá sér?

„En þú myndir vilja koma í þjálfun til mín einhverra hluta vegna og ég myndi ekki vilja fá þig í þjálfun hjá mér. Hvaða rétt hef ég til þess að hafna þér?,“ spyr Kara en hún hafi ekki fengið svör við spurningunni til þessa.

Nánar má kynna sér málið í Þetta helst.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab