Leikur stórstjörnunnar hrundi
Íþróttir | mbl | 20.11.2026 | 8:00
Aryna Sabalenka sagðist þurfa tíma til að jafna sig eftir að hafa tapað ellefu lotum í röð í slæmu tapi gegn Mirru Andreevu á WTA Finals-tennismótinu í Indian Wells.
„Ég þarf einhvern tíma til að jafna mig eftir þetta. Ég veit ekki einu sinni hversu mörgum lotum ég tapaði í röð,“ sagði Sabalenka í ummælum sem WTA birti.
Hvítrússneska tenniskonan átti erfitt með að útskýra hrun sitt eftir að hafa verið 4:1 yfir í fyrsta setti.
Andreeva vann 45 af síðustu 55 stigunum og tryggði sér 6:4, 6:0 sigur á aðeins 62 mínútum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗