Brúðurgrýla gagnrýnd harkalega fyrir kröfur sínar - Vildi að besta vinkonan þyngdi sig: „Ekkert er meira ógnvekjandi en kona sem er að fara að gifta sig“

Kona hefur fengið á sig stimpilinn brúðurgrýla (e. bridezilla) eftir að hún mun hafa farið fram á það við bestu vinkonu sína að hún þyngdist um meira en 45 kíló, allt til þess að brúðurin sjálf myndi virka grannari í samanburðinum á brúðkaupsdaginn.

Brúðarmærin, sem var algjörlega orðlaus yfir uppástungunni, greindi frá þessari fáránlegu beiðni vinkonu sinnar í TikTok-myndbandi sem hefur fengið yfir 100.000 áhorf.

„Það er ekkert meira ógnvekjandi en kona sem er að fara að gifta sig,“ segir konan sem er með notendanafnið Jackie.o436. „Ég hélt að svona brúðargrýlur væru bara til í bíómyndum, en ég gat ekki haft meira rangt fyrir mér.“

Hún segir að verðandi brúður, sem heitir Nikki, hafi boðið henni í mat og beðið hana um að vera brúðarmær í brúðkaupinu sínu í desember. Jackie fannst beiðnin skemmtileg þar til vinkonan fór að telja upp alls kyns fáránlegar kröfur. Samkvæmt myndskeiðinu vildi Nikki að Jackie færi í andlitsmeðferð tvisvar í viku, þar sem bólurnar hennar væru „ljótar á að líta“ og hún vildi ekki greiða aukalega fyrir að láta lagfæra myndirnar sínar.

Nikki sagði að ef vinkonan vildi ekki verða við þessu, þá vildi hún frekar að hún mætti ​​alls ekki í brúðkaupið. Til að bæta gráu ofan á svart vildi verðandi brúðurin að besta vinkona hennar borgaði sjálf fyrir brúðarmeyjarkjólinn sinn.

Og þessar fáránlegu kröfur voru aðeins toppurinn á ísjakanum. Nikki krafðist þess einnig að vinkonan þyngdi sig um heil 120 pund (rúm 54 kíló) á næstu mánuðum, þar sem hún vildi vera grannasta manneskjan á stóra deginum.

„Ég get ekki leyft þér að stela senunni af mér á mínum stóra degi; ég vil vera grannasta tíkin þarna,“ sagði Nikki, samkvæmt frásögn vinkonunnar.

Þessi krafa þótti sérstaklega fáránleg í ljósi þess að brúðurin vegur að sögn Jackie aðeins um 41 kíló (90 pund). En þegar Jackie stakk upp á því að Nikki myndi frekar létta sig, brast brúðurin í grát og sakaði Jackie um að reyna að „skemma brúðkaupið fyrir sér.“

Til að bæta gráu ofan á svart hafði Nikki afturkallað boð til systur sinnar í brúðkaupið vegna þess að systirin neitaði að gangast undir þessa kröfu.

Og þetta var ekki eina leiðin sem brúðurin vildi líta vel út á kostnað annarra, að sögn Jackie. Hún sagðist hafa verið beðin um að beygja sig niður á sviðinu, allt til þess að Nikki yrði hæst allra viðstaddra.

Þegar Jackie mótmælti því mun Nikki hafa kastað diski með spagettíi framan í hana. Í kjölfarið lét Nikki ófriðlega, kallaði Jackie „glataða einhlyepa konu“ og hélt því fram að hún væri öfundsjúk út í brúðkaupið hennar. Jackie fékk nóg, greiddi reikninginn fyrir þær báðar og stormaði út af veitingastaðnum.

„Ég fer aldrei aftur í brúðkaup,“ lýsti Jackie yfir.

Netverjar voru hneykslaðir á framferði brúðarinnar, sem þótti með öllu óásættanlegt.

„Fyrirgefðu, gerði hún hvað?“ spurði einn í algjöru áfalli, á meðan annar skrifaði: „Mér þykir þetta ótrúlega leitt að þú hafir þurft að ganga í gegnum þetta.“ „Hvar finnurðu svona vini, guð minn góður?“ bætti sá þriðji við.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab