36 aldursmunurinn kemur ekki að sök

Robert De Niro og Tiffany Chen voru ástfangin í London.

Robert De Niro og Tiffany Chen voru ástfangin í London. AFP/Richard A. Brooks

Stórleikarinn Robert De Niro mætti á frumsýningu nýjustu kvikmyndar sinnar, Focker In-Law í London, á dögunum. Með honum var kærasta hans Tiffany Chen sem er töluvert yngri en leikarinn. 

DeNiro er 83 ára enChen er 47 ára. Þrátt fyrir að vera að nálgast fimmtugsaldurinn er hún bráðung miðað við kærastann sem er á níræðisaldri. 36 ára aldursmunur er á parinu. Kærustuparið er búið að vera saman í nokkur ár og eignaðist saman barn þegarDeNiro var 79 ára en barnið var sjöunda barn leikarans. 

Ben Stiller, Ariana Grande og Robert De Niro.

Ben Stiller, Ariana Grande og Robert De Niro. AFP/Richard A. Brooks

Chen hefur fylgt De Niro á frumsýningar Focker In-Law um allan heim en um er að ræða fjórðu myndina í Focker-myndaflokknum. Meet the parents kom fyrst út, þá kom myndin Meet the Fockers og svo Little Fockers. Ben Stiller leikur á móti De Niro í myndinni eins og áður sem og Owen Wilson, Blythe Danner og Teri Polo. Söngkonan Ariana Grande fer einnig með stórt hluverk í myndinni. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab