Ekkert til að skammast sín fyrir

„Það er styrkur í því að leita sér hjálpar og maður þarf ekki að bera erfiðleikana einn,“ segir Steinunn. Morgunblaðið/Árni Sæberg

„Ég hef haft gaman af skrifum frá því ég var lítil og alltaf haft löngun til þess að skapa. Það er svolítið langt síðan hugmyndin að Sumarstormi kviknaði og hef ég reynt að byrja að skrifa hana nokkrum sinnum, en lífið og skólinn tóku alltaf yfir,“ segir hin 24 ára Steinunn Silja Elvarsdóttir um fyrstu skáldsögu sína.

„Þegar ég útskrifaðist úr Háskólanum í Reykjavík ákvað ég loksins að láta verða af þessu. Ég vissi ekki hvort hún yrði nokkurn tímann gefin út, en ég vissi líka að ég myndi alltaf sjá eftir því að reyna ekki.“

Sumarstormur fjallar um menntaskólastelpuna Allý. Hún býr við krefjandi heimilisaðstæður og hefur eignast nýja vini sem ekki er víst að sé alltaf treystandi. Þegar pabbi hennar stendur ráðþrota gagnvart aðstæðunum ákveður hann að senda Allý í sveit, þar sem hún kynnist systkinunum Kolbrúnu og Degi. Kolbrún er allt annað en ánægð með komu Allýjar en Dagur tekur henni betur. Þau verða fljótt vinir og tilfinningarnar dýpka eftir því sem líður á sumarið.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab