Stuðningsmenn United í bann

Frá leik Manchester United og Roma.

Frá leik Manchester United og Roma. AFP/Oli Scarff

Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur sett fjóra stuðningsmenn í bann fyrir að kasta tennisboltum inn á völlinn í leik liðsins gegn Roma í Meistaradeildinni á Old Trafford 3. nóvember.

Að minnsta kosti einn þeirra fékk þriggja ára bann samkvæmt The Athletic. Mótmælin gegn eignarhaldi Glazer-fjölskyldunnar stöðvuðu leikinn á 20. mínútu, þegar United var 0:2 undir.

Leikmenn beggja liða hreinsuðu boltana af vellinum áður en United sneri leiknum við og vann 3:2.

United telur að það skapi öryggisáhættu að kasta hlutum og segir að vallarreglur félagsins banni slíkt.

Lögreglan á Stór-Manchester-svæðinu hafði áður staðfest að þrír hefðu verið handteknir vegna hluta sem kastað var inn á völlinn.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab