Netöryggisstjórinn rekinn

Sean Cairncross, netöryggisstjóri Bandaríkjanna og æðsti ráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í netöryggismálum, hefur verið látinn taka poka sinn.

Reuters greinir frá þessu og hefur þetta eftir heimildarmönnum Hvíta hússins.

Brottreksturinn kemur nokkrum dögum eftir að umfangsmikil tæknivandamál hafa dunið yfir Bandaríkin. Flugumferð, bankar, þjónusta Microsoft og bandaríska leyniþjónustustofnunin NSA eru meðal þess sem hefur orðið fyrir barðinu á vandamálunum síðustu daga.

Cairncross bar meðal annars ábyrgð á því að verja Bandaríkin gegn netárásum og móta netöryggisstefnu Bandaríkjanna.

„Forsetinn styður brottvikningu Seans Cairncross úr starfi“, segja heimildarmenn nákomnir Hvíta húsinu í samtali við Reuters.

Kirsten Davies, upplýsingastjóri varnarmálaráðuneytisins, mun taka við starfinu tímabundið, samkvæmt heimildarmönnum Reuters.

Eftirmaður netöryggisstjórans þarf að hljóta samþykki öldungadeildarinnar, þar sem demókratar taka við stjórninni frá og með janúar.

Sérfræðingar hafa sagt að tæknivandamálin sem hafa dunið yfir Bandaríkin síðustu daga tengist líklega ekki netárásum. Það sama hefur Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagt.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab