Er barnið þitt að ljúga að þér? Það er kannski ekki slæmt
Margir foreldrar og forráðamenn ættu að kannast við það að börn þeirra kroti heilu listaverkin á veggi heimilins eða borði eitthvað sem það mátti ekki borða og þverneiti svo öllu aðspurð, þrátt fyrir að halda á tússlit í hendi eða vera með súkkulaði um allt andlit. Hver kannast ekki við setninguna: Hundurinn át heimaverkefnið mitt.
Flestir foreldrar upplifa að börnin þeirra segi ósatt, en slíkur ósannleikur og blekkingar eru mikilvægur þáttur í andlegum þroska barnsins að sögn sálfræðings.
„Þetta er í raun færni sem þau eru að þróa með sér og æfa sig í til að verða betri,“ segir klíníski sálfræðingurinn Dr. Jade Redfern í hlaðvarpinu CBeebies Parenting Download.
Þar er útskýrt hvers vegna það að læra að ljúga er merki um heilbrigða hegðun og hvernig hægt er að hvetja börn til heiðarleika.
Að sögn Redfern eru ung börn ekki enn orðin nógu þroskuð til að ljúga, en þau eru engu að síður fær um að beita blekkingum áður en þau ná eins árs aldri.
Ein af rannsóknunum sem nefndar eru í hlaðvarpinu kemur frá Háskólanum í Bristol. Hún leiddi í ljós að um fjórðungur barna virðist skilja einhvers konar blekkingar þegar þau eru tíu mánaða gömul.
Elena Hoicka prófessor, sem stýrði rannsókninni, segir það hafa verið heillandi að sjá hversu „ótrúlega ung“ börn geta verið útsjónarsöm og slæg, þar á meðal hennar eigin börn.
„Sem móðir þriggja barna get ég sannarlega staðfest hversu lagin og slæg þau geta verið. Það er algengt bragð hjá þeim að fela sig undir borði eða inni á baðherbergi til að borða sælgæti eða súkkulaði.“
Hoicka með dætrum sínum, Ada, sex ára, og Juno, þriggja ára.
Hoicka segir að þær blekkingar sem börn beita frá tveggja ára aldri séu nokkuð einfaldar, til dæmis að láta sem þau heyri ekki í foreldrum sínum, eða neita því að þau hafi gert eitthvað.
„Þetta getur líka falist í því að gera bannaða hluti í laumi,“ segir hún. „Til dæmis að kíkja í tösku sem þeim var bannað að skoða, þegar enginn virðist vera að fylgjast með, eða að finna upp afsakanir, eins og að segjast þurfa á klósettið þegar beðið er um að þau taki til.“
Mynd: Unsplash.com
Þegar börnin eru orðin þriggja ára hafa þau náð mun meiri leikni og sköpunargleði í blekkingum sínum, sem sýnir dýpri skilning þeirra á tungumálinu og því hvernig hugur annarra virkar.
Hoicka segir að börn fari einnig að halda upplýsingum leyndum. Þau gætu til dæmis sagt foreldrum sínum satt og rétt frá því að systkini þeirra hafi slegið þau, en sleppt því að minnast á að þau hafi sjálf slegið systkinið fyrst.
Þessar blekkingar eru merki um að börnin séu að þróa með sér það sem Redfern kallar hugarkenningu (e. theory of mind).
„Eftir því sem börn stækka viljum við að þau læri og þroski þann skilning að þau séu sjálfstæðar verur, með eigin huga og eigin ásetning,“ útskýrir hún. „Þannig þróa þau með sér hæfni til samkenndar, getuna til að setja sig í spor annarra og velta fyrir sér hugsunum og tilfinningum sem gætu verið frábrugðnar þeirra eigin.“
Önnur ástæða þess að barn gæti logið er sjálfsbjargarviðleitni; barnið vill einfaldlega ekki valda foreldri sínu vonbrigðum eða gera það reitt.
„Mannverur eru knúnar áfram af þörfinni fyrir tengsl,“ segir Redfern. „Börn leggja mikið upp úr því að viðhalda tengslunum við þá sem annast þau, enda eru þau háð þeim.“
Hún bendir á að börn læri snemma hvað færir þau nær þeim sem annast þau og hvað veldur fjarlægð. Með þetta í huga telur Redfern að hægt sé að hvetja til heiðarleika með því að skapa barninu öruggt umhverfi þar sem það getur sagt satt.
„Við þurfum að finna leiðir til að börnum finnist þau nógu örugg til að segja okkur satt, jafnvel þegar þau hafa gert mistök... og vilja ekki valda okkur vonbrigðum.“
Sigurvegari Svikaranna tileinkar sér þessa nálgun
Rachel Duffy, sem sigraði í nýjustu þáttaröðinni af The Traitors, segir í hlaðvarpinu CBeebies Parenting að hún hafi einmitt reynt að tileinka sér þessa nálgun. Duffy, sem er þriggja barna móðir, rifjar upp atvik þar sem elsti sonur hennar fékk lánað hjól bróður síns og skemmdi það þegar hann keyrði á bíl. Í fyrstu reyndi hann að ljúga til um hvað hefði gerst.
„Ég sagði við hann: ‚Þú lendir ekki í neinum stórvandræðum ef þú segir mér sannleikann.‘ Ég gekk svo bara í burtu og gaf honum smá svigrúm. Þá sagði hann: ‚Já, þetta var ég.‘ Hann fann að þetta svigrúm var öruggt. Við áttum samtal, enginn hækkaði röddina, enginn öskraði eða lét látum.“
Rachel Duffy. Mynd: Skjáskot BBC.
Redfern segir þetta gott dæmi um hvernig hægt er að takast á við slíkar aðstæður. Hún bendir jafnframt á að stundum geti verið viðeigandi að segja ósatt, eða fara í kringum sannleikann, til dæmis þegar börn fá gjöf sem þau vilja ekki, eða þegar þau lýsa útliti annarra.
„Börnin mín sögðu nýlega, með mikilli gleði, að ég væri mjög hrukkótt,“ segir hún. „Ég reyni aftur að mæta þessu með opnum huga og forvitni.“
Hún gerir þetta með því að ræða við þau um hvers vegna þau telja hana vera hrukkótta.
„Ég tel að það að fá að kanna hlutina eftir því sem börnin stækka, að eiga opnar samræður af forvitni, stuðli verulega að því að þau læri að sýna öðrum samkennd. Þetta gerist þegar þau hafa ítrekað fengið að upplifa samkennd hjá öðrum og séð hana sýnda í verki.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗