United á meiri möguleika eftir að Pochettino tók við

Manchester United hefur áhuga á að fá Nico Paz, 22 ára miðjumann Como, til félagsins og gæti ráðning Mauricio Pochettino aukið líkurnar á félagaskiptunum.

Samkvæmt The Sun hefur United fylgst lengi með Argentínumanninum, sem hefur farið á kostum í ítölsku A-deildinni á tímabilinu.

Paz minnti á hæfileika sína í vikunni þegar hann skoraði tvö glæsileg mörk í 7-0 sigri Argentínu gegn Kosta Ríka.

Real Madrid gæti þó sett strik í reikninginn en spænska stórliðið hefur forkaupsrétt á leikmanninum sem hljóðar upp á 80 milljónir evra árið 2027.

Paz lék áður með Real Madrid en gekk til liðs við Como eftir að hafa átt erfitt með að festa sig í sessi hjá spænska félaginu.

Arsenal, Chelsea og Paris Saint-Germain hafa einnig verið orðuð við miðjumanninn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab