Vill góða matarupplifun í faðmi fjallanna

Sigurður Þorsteinsson er framkvæmdastjóri hönnunar hjá Bláa lóninu og hefur starfað þar frá árinu 1997. Ljósmynd/Aðsend

Sigurður Þorsteinsson trúir því að hálendið eigi að standa öllum opið, ekki bara þeim sem koma til að klífa fjöll. Þar eigi fólk líka að geta notið góðs matar og víns, sofið í þægilegu rúmi og horft á fjöllin í ró og næði. Hjá Bláa lóninu hefur hann fengið svigrúm til að hugsa upplifun gesta sem eina heild, allt frá fyrstu hugmyndinni að nýjum áfangastað niður í diskinn sem maturinn er borinn fram á.

Við sitjum í Kerlingarfjöllum þar sem þessar hugmyndir hafa fengið á sig áþreifanlega mynd. Sigurður er framkvæmdastjóri hönnunar hjá Bláa lóninu og hefur unnið með fyrirtækinu frá árinu 1997. Það að hönnuður eigi sæti í framkvæmdastjórn segir sitt um vægi hönnunar í uppbyggingunni. Hönnunin kemur snemma að borðinu og fylgir verkefnunum alla leið.

„Ég er með mjög víða skilgreiningu á því hvað hönnun er,“ segir hann. „Allt hið manngerða er hannað. Spurningin er bara hvort það sé hannað og framkvæmt meðvitað.“

Maturinn fellur vel að staðnum og aðstæðum í Kerlingarfjöllum, að mati Sigurðar. Rekstur á hálendinu krefst annarrar hugsunar en í þéttbýli. Ljósmynd/Cindy Rún

Frá matnum til bókanna

Verksvið Sigurðar nær yfir þróun áfangastaða, hönnun, vörumerki og framkvæmdir. Hann líkir hlutverkinu við starf hljómsveitarstjóra sem leiðir saman marga hópa og einleikara á ólíkum sviðum. Útkoman byggist á samspili þeirra.

„Agnar Sverrisson, kokkurinn okkar, er að hanna matinn. Ég kem að því að hjálpa honum í einhverjum pælingum og svo erum við kannski að hugsa um borðbúnaðinn með honum,“ segir hann, en Agnar stýrir Michelin-staðnum Moss.

„Í öðrum hlutum stýrum við hönnuninni alveg niður í litlu smáatriðin. Við veljum bækurnar og alla snertifletina sem þú hefur þegar þú kemur sem gestur.“

Þarna liggur tengingin milli hönnunar og matarupplifunar. Diskurinn, stóllinn, umhverfið og þjónustan eiga hvert sinn þátt í kvöldinu. Sigurður hefur mikinn metnað fyrir hönd Moss og fer ekkert leynt með álit sitt á matargerðinni þar.

„Mér finnst matstaðurinn standa fullkomlega undir tveimur Michelin-stjörnum,“ segir hann og brosir.

Sigurður hefur mikinn metnað fyrir hönd Moss og fer ekkert leynt með álit sitt á matargerðinni þar. Að færa slíkan mat upp á hálendið er hæfileiki sem ekki allir geta framkvæmt. Ljósmynd/Cindy Rún

„Ég er latur kokkur“

Sigurður býr í Mílanó með eiginkonu sinni og dóttur. Hann er fæddur í Vesturbænum en ólst upp í Neðra-Breiðholti og lýsir sér glettinn sem góðum villingi. Hann hélt til Ítalíu í því skyni að kynnast annarri menningu og annarri nálgun við lífið.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að skilja fólk. Þú getur ekki hannað fyrir einhvern nema þú skiljir hann.“

Að loknu námi í iðnhönnun tók við starf hjá Design Group Italia í Mílanó.

„Ég ætlaði aldrei að stoppa á Ítalíu. Það var ekki planið. Ég kláraði skólann á föstudegi og byrjaði að vinna hjá Design Group Italia á mánudegi.“

Þar vann hann meðal annars fyrir Samsung, PepsiCo, Unicef, 3M og 66°Norður. Verkefnin náðu líka inn í matvælaheiminn, til dæmis í samstarfi við Barilla.

„Við vorum bæði í umbúðum og hugmyndavinnu, matarpælingum eins og nýjum útgáfum af grissini eða mozzarella-osti.“

En hvernig kokkur er maður sem hefur atvinnu af því að hugsa um upplifun annarra?

„Ég er latur kokkur,“ svarar hann. „Ég er með nokkra rétti, en konan mín eldar svo vel að það er alltaf erfitt í samanburði.“

Spagettí með sjávarfangi er þó líklega einkennisréttur hans. Hann nefnir einnig brokkólípasta og túnfiskpasta.

„Með túnfiskpastanu slæ ég reyndar konunni við,“ segir hann glettinn.

Ítölsku vínin fengu meira pláss

Áhugi Sigurðar á mat nær líka til vínseðlanna, þótt þar haldi aðrir um taumana.

„Ástþór Sigurvinsson er með vínmálin, en ég var kannski að skipta mér af þegar mér fannst vera allt of lítið af ítölskum vínum,“ segir hann.

Lífið á Ítalíu gefur honum sjálfum fjölmörg tækifæri til að njóta matar og víns. Hann rifjar upp ferð með eiginkonu sinni til Langhe, á slóðir Alba, Barolo og Barbaresco, þar sem vín og trufflur setja svip á matarmenninguna.

„Svo skellir maður sér bara þangað, nýtur þess og borðar og flýgur svo heim daginn eftir.“

Ferðalög milli Íslands og Ítalíu eru stór hluti af daglegu lífi hans. Verkefnin hér kalla á nærveru hans og hann reynir að finna jafnvægi milli vinnunnar og fjölskyldulífsins. Hann kann líka að meta hitamuninn milli landanna.

„Það er voða gott að fara héðan úr þremur, fjórum gráðum í tuttugu, tuttugu og tvær gráður á Ítalíu. En það var líka frábært að vera hér í sumar í tíu gráðum en ekki fjörutíu.“

Gott að borða á hálendinu

Í Kerlingarfjöllum hefur Sigurður lagt áherslu á að maturinn falli að staðnum og aðstæðum hans. Rekstur á hálendinu krefst annarrar hugsunar en rekstur í þéttbýli.

„Það var ævintýri að byggja þetta og það er ævintýri að reka þetta,“ segir hann. „Ég kem að upprunalegu pælingunni: Hvað eigum við að hafa hér? Höfum þetta einfalt, gerum rétti sem eru ekki of flóknir í framkvæmd og vinnum með íslensk hráefni. Svo eru það kokkarnir sem taka það og þróa áfram.“

Hann vill að fleiri geti notið hálendisins á eigin forsendum. Sjálfur fer hann þangað oft á hverju ári en telur fjallgöngur ekki einu leiðina til að upplifa náttúruna.

„Ég er líka í náttúrunni til að horfa á fjallið.“

Hann spyr hvers vegna þægindi og góður matur eigi ekki heima þar líka.

„Af hverju má ekki vera uppi á hálendinu og njóta þess og njóta annarra hluta líka? Af hverju má rúmið ekki vera gott?“

Diskarnir og framsetningin mynda eina heild þar sem litir, áferð og hráefni kallast á við umhverfið í Kerlingarfjöllum. Þannig fær landslagið að setja svip sinn á matarupplifunina og fylgja gestum alla leið að borðinu. Ljósmynd/Irja Gröndal

Fjallaþorp þar sem fólk hittist

Þegar talið berst að því hvað hafi tekist best í Kerlingarfjöllum nefnir Sigurður hugmyndina um fjallaþorp. Dreifðar byggingar og fólk á ferð á milli þeirra eigi stóran þátt í stemningunni.

„Ég sá alltaf fyrir mér fjallaþorp. Mér finnst ein stór bygging ekki passa í lítinn fjalladal.“

Honum þykir vænt um að sjá fólk hittast og vill halda áfram að byggja upp viðburði sem leiða gesti saman, hvort sem tilefnið er matur, tónlist eða jóga. Matarviðburðir með ÓX og Moss falla vel að þeirri sýn.

„Að gestir séu að koma í tengslum við eitthvað. Að fólkið sé líka að uppgötva og upplifa annað fólk.“

Þorpið hentar því einstaklega vel fyrir hópa. Kerlingarfjöll hafa líka reynst mikil uppspretta innblásturs og hafa jafnvel glæpasagnahöfundar dvalið þar og sótt sér nýjar hugmyndir í kyrrðina og landslagið. Í vetur gefst hópum tækifæri til að koma saman í Kerlingarfjöllum, njóta góðs matar og náttúrunnar og hafa staðinn út af fyrir sig.

Notalegt og gott rúm og hlýleg umgjörð bíða gesta eftir dag á fjöllum. Hér er gott að draga sig í hlé, njóta kyrrðarinnar og hvílast fyrir ævintýri næsta dags. Ljósmynd/Cindy Rún

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab