Fundu ekki innbrotsþjófinn

Fjórir gista í fangageymslum lögreglunnar nú í morgunsárið.

Brotist var inn í bifreið í austurbæ Reykjavíkuur í gærkvöld eða í nótt og sást gerandinn hlaupa í burtu frá vettvangi. Lögregla fór strax á staðinn og leitaði en fann innbrotsþjófinn ekki.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.

Tilkynnt um umferðaróhapp í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ en þar hafði ökumaður ekið utan í aðra bifreið. Skömmu síðar var tilkynnt um bifreiðina aftur en ökumaður hafði farið af vettvangi. Ökumaðurinn var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og gistir nú í fangageymslu vegna málsins.

Ökumaður bifreiðar var stöðvaður í akstri grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá er einnig grunaður um sölu fíkniefna og var hann vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab