Beðnir um að afhenda farsíma sem þeir notuðu í Kína
Fréttamenn sem ferðuðust með Donald Trump Bandaríkjaforseta voru beðnir um að afhenda farsíma sem þeir höfðu notað í Kína, í öryggisráðstöfun þegar Air Force One bjó sig undir brottför frá Shenzhen í Kína í gær.
Þessar óvenjulegu varúðarráðstafanir komu í kjölfar funda Trumps með þjóðarleiðtogum í Shenzhen, þar á meðal Xi Jinping, forseta Kína, og Vladímír Pútín, forseta Rússlands.
„Starfsmaður safnaði saman nokkrum farsímum frá fréttamönnum í fjölmiðlahópnum þegar við gengum um borð í vélina og setti þá í Faraday-poka, sem er hannaður til að loka fyrir merki,“ sagði fréttamaður í fjölmiðlahópi Hvíta hússins í minnisblaði við heimkomuna til Bandaríkjanna.
„Okkur var tjáð að þetta væri nauðsynleg netöryggisráðstöfun gegn hugsanlegum njósnatilraunum,“ bætti hann við.
Þá safnaði aðstoðarmaður forsetans saman tímabundnum einnota símum sem starfsfólk Hvíta hússins notaði í Kínaheimsókninni, svo hægt væri að farga þeim eða eyða gögnum af þeim.
Blaðamenn voru beðnir um að setja tæki sem þeir höfðu notað í landinu í poka sem loka fyrir merki þar til flugvélin lenti í Bandaríkjunum.
Svokallaðir Faraday-pokar eru hannaðir til að verja raftæki fyrir þráðlausum samskiptum og draga þannig úr hættu á eftirliti eða gagnasöfnun.
Einnota símar eru tímabundin tæki sem notuð eru í stað hefðbundinna farsíma til að verja þá fyrir hugsanlegum öryggisógnum.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗